Nýsköpun í starfandi fyrirtækjum
Markmið
Markmiðið með verkefninu "Nýsköpun í starfandi fyrirtækjum á landsbyggðinni" er að innleiða hugmyndir og aðferðir nýsköpunar í stefnu og starfsemi fyrirtækja og gera þau þannig hæfari í samkeppni. Fyrirtækin sem taka þátt í verkefninu fara í gegnum endurhugsun á stjórnkerfi og endurskipulagningu á nýsköpunar- og þróunarferlum. Byggð verður upp þekking innan fyrirtækisins sem gera á það hæfara að til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Í verkefninu verður fyrst og fremst horft til raunhæfs árangurs sem mældur verður í veltu, arðsemi og færni til að drífa reksturinn áfram.
Verkefnislýsing
Verkefnið gefur fyrirtækjum á landsbyggðinni möguleika á að nýta sér aðferðir nýsköpunar til að ná betri árangri í rekstri. Farið verður yfir hugmyndafræði nýsköpunar á tímum alþjóðavæðingar. Fjallað um líftíma afurða og fyrirtækja, vöruþróun, nýja stjórnunarhætti, hvetjandi vinnuaðferðir og markaðssókn. Í verkefninu verða framangreindir þættir skoðaðir í sambandi við endurbætur á núverandi lausnum hjá þátttökufyrirtækjum. Verkefnið verður unnið í samstafi starfsmanna viðkomandi fyrirtækis og ráðgjafa í nýsköpun sem fyrirtækið velur. Fjárhagslegur styrkur frá Impru nemur 50% af kostnaði ráðgjafa þó að hámarki kr. 500.000.
Framkvæmd
Að loknum umsóknarfresti mun verkefnisstjóri yfirfara umsóknir og afla frekari upplýsinga hjá umsækjendum ef þörf krefur. Fjölskipaður matshópur mun síðan meta umsóknirnar og velja þátttakendur innan mánaðar frá því að umsóknarfresti lýkur.
Verkefnið hefst með formlegum fundi þar sem skrifað verður undir samning og fulltrúum þátttökufyrirtækjanna verður boðið upp á fræðslu um nýsköpun, markaðssókn og nýja stjórnunarhætti. Einnig verða þátttakendur upplýstir um skipulag verkefnisins. Vinnan við verkefnið verður sérsniðin að hverju þátttökufyrirtæki og mun skiptast í eftirfarandi 3 meginþætti:
- Kostnaðar- og framlegðarútreikninga
- Vöru- og markaðsgreiningu
- Stjórnun og rekstur
Innan hvers ferils er um töluvert mikla vinnu að ræða sem að verulegum hluta verður unnin af starfsmönnum viðkomandi fyrirtækis, en með “verkfærum” og aðferðum sem ráðgjafi leggur til. Vinna ráðgjafa felst í umsjón með vinnunni, fræðslu og leiðbeiningum til starfsmanna um notkun á verkfærunum og leiðbeiningum um hvernig verkið skuli unnið. Einnig mun ráðgjafi taka þátt í umræðum og leggja fram hugmyndir að umbótum og nýsköpun. Ráðgjafi mun vinna með starfsmönnum að útfærslu aðgerða og eftirfylgni til að sem bestur árangur náist.
Gera má ráð fyrir að ráðgjafi verji um 23 dögum í vinnu fyrir hvert fyrirtæki á verkefnistímanum.
Mat umsókna
Stjórn verkefnisins er skipuð fulltrúum frá iðnaðarráðuneytinu, Iðntæknistofnun, Impru, og atvinnuráðgjöfum. Stjórnin mun meta umsóknir og velja u.þ.b. 10 fyrirtæki til þátttöku.
Frekari upplýsingar um verkefnið gefur Sigurður Steingrímsson, verkefnisstjóri hjá Impru nýsköpunarmiðstöð á Akureyri. Sími 460-7970. Netfang: sigurdurs@nmi.is
Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyri
sími 460-7970









