Skrefi framar
Verkefnið er alltaf opið til umsóknar.
Skrefi framar er ráðgjafaverkefni fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni þar sem Impra nýsköpunarmiðstöð greiðir niður ráðgjafakostnað í verkefninu um allt að 600 þús. kr.
Markmið verkefnisins:
- Að auðvelda stjórnendum fyrirtækja að bæta rekstur og auka þekkingu innan fyrirtækjanna með utanaðkomandi ráðgjöf
- Að aðstoða stjórnendur við val á ráðgjöf og ráðgjöfum
- Að veita forsvarsmönnum fyrirtækjanna og ráðgjöfum stuðning við verkefnisstjórnun meðan á ráðgjöf stendur til að tryggja sem bestan árangur
- Að auka veltu fyrirtækjanna og arðsemi
Ráðgjafinn
Fyrirtækin velja sjálf ráðgjafa eftir eðli verkefnanna, en verkefnisstjórn veitir upplýsingar við val á ráðgjöf og ráðgjöfum.
Styrkur
Styrkur er veittur til að gera forathugun og stöðumat á fyrirtækinu, leiðbeinandi ráðgjöf um úrbætur í rekstri og framkvæmd þeirra. Styrkurinn nemur 50% af heildar ráðgjafarkostnaði. Styrkur á hvert verkefni getur numið allt að 50-100 ráðgjafatímum eða að hámarki 600.000 kr. Upphæð styrkja fer þó eftir umfangi hvers verkefnis og geta styrkirnir því verið frá kr. 100.000 til kr. 600.000.
Ávinningur þátttökufyrirtækja
- Úttekt og mat á stöðu fyrirtækisins
- Ráðgjöf og leiðbeiningar um úrbætur í rekstri
- Fagleg aðstoð við að hrinda umbótum í framkvæmd
- Bein tengsl milli fyrirtækis og hæfustu ráðgjafa
- Fyrirtækið verður hæfara í samkeppni að verkefninu loknu
Val fyrirtækja
Verkefnið er opið minni fyrirtækjum í öllum starfsgreinum, en verkefnið miðar að stuðningi við fyrirtæki sem hafa verið með starfsemi í a.m.k. tvö ár og velt a.m.k. 10 milljónum árlega. Við mat á umsóknum vegna markaðsmála, framleiðslustjórnunar og skipulagningar er m.a. tekið tillit til fjárhagsstöðu, markaðsmöguleika, fyrirliggjandi verkefna og getu til að blása til sóknar. Við mat á umsóknum vegna fjármála er tekið tillit til fjárhagsstöðu og framtíðarmöguleikum fyrirtækisins og getu þess til að hrinda umbótum í framkvæmd. Við mat á umsóknum vegna umhverfisúttekta er tekið tillit til áhuga á og þörf fyrir úrbótum í umhverfismálum.
Meðferð umsókna
Þegar fyrirtæki hafa lagt inn umsókn hafa verkefnisstjórar samband við ráðamenn fyrirtækisins og aflar sér frekari upplýsinga. Verkefnisstjóri heimsækir fyrirtækið og kynnir sér starfsemi þess. Að því loknu útbýr verkefnisstjóri umsögn um fyrirtækið og leggur fram tillögu um styrkveitingu eða höfnun umsóknar. Allar umsóknir eru teknar til athugunar hjá stjórn verkefnisins. Til þess að umsókn fái afgreiðslu þurfa allar upplýsingar, sem óskað er eftir að liggja fyrir. Eftir að stjórn verkefnisins hefur fjallað um umsóknina mun verkefnisstjóri senda bréf um hvort fyrirtæki hafi verið boðin þátttaka í verkefninu. Verkefnisstjórar hafa síðan samband við þau fyrirtæki sem fengu styrk og skilgreinir þarfir þeirra enn frekar og aðstoðar þau við öflun ráðgjafa og gerð verkáætlunar.
Verkefnisvinna
Verkefnið er unnið af ráðgjafa fyrirtækisins og starfsmönnum þess. Hlutverk verkefnisstjóra gagnvart þátttökufyrirtækjum er að:
- Gera verklýsingu, tíma- og kostnaðaráætlun ásamt ráðgjafa og fulltrúa fyrirtækis
- Koma á beinum tengslum milli fyrirtækja og hæfustu ráðgjafa
- Greiða þátttökuaðilum styrk eftir framvindu verkefna
- Hafa eftirlit með að framkvæmd verkefna sé í samræmi við áætlanir
Vinna verkefnisstjóra er fyrirtækjum að kostnaðarlausu. Gert er ráð fyrir að verkefninu verði lokið innan 6 mánaða.
Árangursmat
Við verklok er árangur viðkomandi ráðgjafaþjónustu metinn og skilvirkni verkefnisins í heild sinni. Könnun verður gerð meðal þátttökufyrirtækjanna á árangri og ávinningi í lok hvers verkefnis.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar um Skrefi framar veita Sigurður Steingrímsson, sigurdurs@nmi.is í síma 522-9435, Arna Lára Jónsdóttir, arnalara@nmi.is og Sigríður Kristjánsdóttir, sirry@nmi.is í síma 522-9460.









