Sóknarfæri á Suðausturlandi
Sóknarfæri er stuðningsverkefni sem ætlað er starfandi fyrirtækjum sem vilja vinna að nýsköpun, vexti eða umbótum í starfsemi sinni.
Sóknarfæri á Suðausturlandi er sérstaklega ætlað fyrirtækjum á suðausturlandi frá Skaftárhreppi að Djúpavogshreppi .Til að geta sótt um styrk þurfa fyrirtæki að hafa verið með starfsemi að lágmarki í eitt ár og velta a.m.k. 10 miljónum króna.
Sóknarfæri er stuðningsverkefni sem ætlað er starfandi fyrirtækum sem vilja vinna að nýsköpun, vexti eða umbótum í starfsemi sinni. Markmiðið með Sóknarfæri er:
- Að greina styrkleika og veikleika í starfsemi fyrirtækja og greina tækifæri til vaxtar.
- Að auðvelda stjórnendum fyrirtækja að bæta rekstur og auka þekkingu fyrirtækjanna með utanaðkomandi ráðgjöf.
- Að aðstoða stjórnendur við val á ráðgjöfum og hrinda af stað vel skilgreindum verkefnum.
Að veita forsvarsmönnum fyrirtækjanna og ráðgjöfum stuðning við verkefnastjórnun meðan á ráðgjöf stendur til að tryggja sem bestan árangur.
Nánari upplýsingar veitir Ari Þorsteinsson verkefnisstjóri Impru á Höfn í síma 470 -8080 / 891 8080 eða í netfangið arith@nmi.is
Hér er finna nánari upplýsingar um Sóknarfæri á Suðausturlandi.









