Úttekt á árangri stuðningsverkefna
Stuðningsverkefni Impru hafa þegar skilað árangri
Til þess að leggja mat á árangur stuðningsverkefna sem Impra hefur rekið á landsbyggðinni á árunum 2003-2006 var Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands falið að vinna könnun meðal þátttakenda.
Á tímabilinu tóku 303 fyrirtæki og einstaklingar þátt í verkefnum Impru. Svörun í könnuninni var 86,10%.
Skýrslu Félagsvísindastofnunar má finna í hér
Niðurstöður könnunarinnar sýna glöggt að stuðningsverkefni Impru hafa þegar skilað mikilvægum árangri á ýmsum sviðum þróunar og rekstrar. Könnunin sýnir að velta þátttökufyrirtækjanna jókst um rúman milljarð.
Könnunin náði til þessara verkefna:
Þróun í starfandi fyrirtækjum er verkefni þar sem unnið er með fyrirtækjum að þróun nýrrar vöru eða þjónustu.
Frumkvöðlastuðningur er verkefni þar sem boðið eru upp á stuðning til að þróa nýsköpunarhugmyndir einstaklinga ogsmærri fyrirtækja.
Skrefi framar er stuðningur við starfandi fyrirtæki til að afla sér ráðgjafar sem tengd er úrbótum eða aukinni sókn í rekstri fyrirtækja.
Nýsköpun í starfandi fyrirtækjum er verkefni þar sem ráðgjafi vinnur með stjórnendum við að bæta árangur í rekstri, nýsköpun og markaðssókn.
Brautargengi er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd. Á landsbyggðinni hafa 166 lokið námskeiðinu, auk 580 á höfuðborgarsvæðinu.
Sóknarbraut er námskeið fyrir frumkvöðla og stjórnendur smáfyrirtækja sem vilja auka þekkingu sína á rekstri og gera nýjar viðskiptahugmyndir að veruleika.









