Beint á leiðarkerfi vefsins

Vaxtarsprotar

Uppskeruhátíð VS 2008 vor 1

Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafa gert samkomulag um stuðningsverkefni sem hefur það að markmiði að hvetja til fjölbreyttrar atvinnusköpunar í sveitum landsins. Verkefnið er nefnt Vaxtarsprotar.

Verkefnið nær til landsins alls en unnið er innan ákveðinna svæða hverju sinni. Það svæði sem verkefnið mun beinast að á fyrri hluta ársins 2010 er Eyjafjörður. Verkefnið er unnið í samstarfi við landbúnaðarráðunauta sem og atvinnuþróunarfélög á viðkomandi svæði. 

Fyrir hverja er verkefnið?
Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit, óháð eðli viðskiptahugmynda, atvinnugreinum, eða reynslu þátttakenda á sviði atvinnurekstrar. Íbúar í þéttbýli geta einnig tekið þátt, en ábúendur á lögbýlum hafa forgang. Þátttakendur vinna með eigin viðskiptahugmyndir. Fulltrúum starfandi fyrirtækja er einnig velkomið að taka þátt með það að markmiði að vinna að frekari framþróun eða mótun nýjunga í rekstri sínum. Þátttaka í Vaxtarsprotum er án endurgjalds.

Ferli verkefnisins

Verkefnið byggir á ákveðnu ferli sem má lýsa á eftirfarandi hátt:

  1. Kynning á verkefninu.
  2. Fræðsla og leiðsögn við hugmyndavinnu og undirbúning viðskiptahugmynda (bæði í námskeiðaformi og gegnum einstaklingsmiðaða leiðsögn).
  3. Kynning á möguleikum á fjárstyrkjum frá Impru og Framleiðnisjóði og leiðsögn við gerð umsókna.  
  4. Eftirfylgni og áframhaldandi leiðsögn.

Þátttaka í verkefninu ein og sér felur ekki í sér vilyrði fyrir fjárstyrkjum. Hvert og eitt verkefni verður metið með tilliti til verklagsreglna sem gilda um styrkveitingar hjá forsvarsaðilum verkefnisins. Virk þátttaka í fyrri stigum verkefnisins eykur hins vegar líkur á að verkefni séu vel undirbúin og þar með aukast líkur á styrkjum.

Leiðsögn og frekari upplýsingar

Þátttakendum í verkefninu mun á verkefnistímanum standa til boða leiðsögn hjá starfsmönnum Impru og stuðningsaðilum í heimabyggð. Framkvæmd verkefnisins á vormisseri 2009 er unnin í samstarfi við Búgarð - ráðgjafaþjónustu á norðausturlandi.

Hér til vinstri eru tenglar á námskeiðsdagskrá Vaxtarsprota og nánari upplýsingar um fræðsluhluta verkefnisins. Þar er einnig að finna kynningarbækling verkefnisins fyrir haustmisseri 2008. Sigríður Kristánsdóttir verkefnisstjóri hjá Impru veitir nánari upplýsingar um verkefnið í síma 522-9462 eða gegnum tölvupóst sirry@nmi.is


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica