Fræðsluhluti Vaxtarsprota
Fræðsluhluti Vaxtarsprota samanstendur af 36 stunda námskeiði. Hin eiginlegu námskeiðsskipti eru níu einnig er boðið upp á vinnusmiðjur. Í lok námskeiðsins kynna þátttakendur verkefni sín fyrir öðrum þátttakendum, kennurum og stuðningsaðilum. Að námskeiði loknu er haldin uppskeruhátíð þar sem þátttakendur eru útskrifaðir formlega auk þess sem þeim gefst tækifæri til að koma verkefnum sínum á framfæri. Kennarar á námskeiðunum eru Árdís Ármannsdóttir, Karl Friðriksson, Kristbjörg Jónasdóttir, Sigríður Ingvarsdóttir og Tinna B Arnardóttir verkefnisstjórar hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Gestafyrirlesari um vöruhönnun og vöruþróun er Brynhildur Pálsdóttir vöruhönnuður. Umsjón með vinnusmiðjum og leiðsögn milli námskeiða hafa Tinna B Arnardóttir og Erla Sigurðardóttir ásamt örðum verkefnisstjórum hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og stuðningsaðilum í héraði.
Viðfangsefni námskeiðs
- Kynning á ferli og námsgögnum, hugmyndavinna, stefnumótun og markmiðasetning.
- Verkefnastjórnun, framkvæmda- og verkáætlun. Gerð viðskiptaáætlana.
- Markaðsmál, markaðsgreining og markaðsupplýsingar.
- Vöru- og þjónustuþróun. Fjármál og fjárhagsáætlanir.
- Vöruþróun og vöruhönnun.
- Vinnusmiðja*, þátttakendur vinna að eigin verkefnum.
- Markaðsáætlanagerð.
- Rekstrarform fyrirtækja, fjármál II og rekstur.
- Fjármál III.
- Vinnusmiðja*, þátttakendur vinna að eigin verkefnum.
- Kynningartækni og upprifjun. Vinnusmiðja*, þátttakendur vinna að eigin verkefnum.
- Kynning þátttakenda á verkefnum sínum.
- Uppskeruhátíð* og útskrift af námskeiði.
* Vinnusmiðjur og uppskeruhátíð teljast ekki til námskeiðskennslustunda.









