Beint á leiðarkerfi vefsins

Um Impru á Nýsköpunarmiðstöð

Impra  er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki og er deild innan Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Impra á Nýsköpunarmiðstöð er með starfsstöðvar í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði, Höfn, Egilsstöðum, Húsavík, Sauðárkróki og Vestmannaeyjum.

Hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð er á einum stað hægt að leita aðstoðar um allt sem við kemur viðskiptahugmyndum og almennum rekstri fyrirtækja. Hægt er að leita til sérfræðinga á ýmsum sviðum um leiðsögn og upplýsingar varðandi mismunandi þætti hugmynda og reksturs. Jafnframt eru gefin út leiðbeiningarit og fylgst náið með því sem er að gerast hérlendis og erlendis fyrir frumkvöðla og fyrirtæki.

Impra á Nýsköpunarmiðstöð veitir einstaklingum fjölbreytta aðstoð við að þróa viðskiptahugmyndir og hrinda þeim í framkvæmd.

Pantaðu tíma í endurgjaldslausa handleiðslu

Árlega veitum við rúmlega 5000 viðtöl þar sem frumkvöðlum og stofnendum fyrirtækja er veitt leiðsögn við þróun viðskiptahugmynda, gerð viðskiptaáætlana og stofnun og rekstur fyrirtækis.

Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands veitir öllum frumkvöðlum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi leiðsögn, sama er í hvaða atvinnugrein þau eru, hvort heldur á sviði iðnaðar, sjávarútvegs, þjónustu eða annarra greina íslensks atvinnulífs

Frumkvöðlasetur

Nýsköpunarmiðstöð Íslands rekur sjö frumkvöðlasetur þar sem einstaklingar og hópar fá aðstöðu og stuðning til að hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd.

  • Skrifstofuaðstaða gegn vægu gjaldi
  • Faglegur stuðningur starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar
  • Skapandi umhverfi
  • Tengslanet
  • Aðstaða fyrir verkstæði, rannsóknir eða frumgerðasmíði (í Eldey, Kími og á Keldnaholti)

Allt um stofnun og rekstur fyrirtækja

Á vef okkar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um viðskiptahugmyndir og stofnun og rekstur fyrirtækja, þar á meðal gátlisti fyrir stofnun fyrirtækja, reiknilíkön (Excel) fyrir áætlanagerð og algeng leyfi sem þarf til atvinnurekstrar.

Námskeið um stofnun fyrirtækis


Boðið er upp á ýmis námskeið fyrir einstaklinga sem hafa hug á að stofna fyrirtæki. Námskeiðin eru allt frá tveimur dögum upp í 75 klst. Á lengri námskeiðunum vinna þátttakendur að viðskiptaáætlun fyrir eigin viðskiptahugmyndir.  

Stuðningur

Impra leiðir mótun stuðningsverkefna sem stuðla að bættum rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja og framgangi viðskiptahugmynda. Auk þess er Impra vettvangur samstarfs íslenskra og erlendra frumkvöðla og lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Impra er ráðgjafi stjórnvalda um stuðningsaðgerðir við nýsköpun og bætt rekstrarskilyrði og rekstur lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Frekari upplýsingar 

Ef þig langar að vita meira um starfsemi Impru á Nýsköpunarmiðstöð hafðu þá samband við Jóhönnu Ingvarsdóttur á netfangið johanna@nmi.is eða í síma 522-9267.  
 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica