Beint á leiðarkerfi vefsins

Um Impru á Nýsköpunarmiðstöð

Impra  er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Impra er deild innan Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og hefur skrifstofur í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði, Höfn, Egilsstöðum, Húsavík, Sauðárkróki og Vestmannaeyjum.

Impra veitir öllum frumkvöðlum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi leiðsögn, sama er í hvaða atvinnugrein þau eru, hvort heldur á sviði iðnaðar, sjávarútvegs, þjónustu eða annarra greina íslensks atvinnulífs.

Impra starfrækir frumkvöðlasetur til stuðnings frumkvöðlum og framgangi nýrra hugmynda.

Impra leiðir mótun stuðningsverkefna sem stuðla að bættum rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja og framgangi viðskiptahugmynda. Auk þess er Impra vettvangur samstarfs íslenskra og erlendra frumkvöðla og lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Impra er ráðgjafi stjórnvalda um stuðningsaðgerðir við nýsköpun og bætt rekstrarskilyrði og rekstur lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð er á einum stað hægt að leita aðstoðar um allt sem við kemur viðskiptahugmyndum og almennum rekstri fyrirtækja. Hægt er að leita til sérfræðinga á ýmsum sviðum um leiðsögn og upplýsingar varðandi mismunandi þætti hugmynda og reksturs. Jafnframt eru gefin út leiðbeiningarit og fylgst náið með því sem er að gerast hérlendis og erlendis fyrir frumkvöðla og fyrirtæki.

Ef þig langar að vita meira um starfsemi Impru á Nýsköpunarmiðstöð hafðu þá samband á  tinna@nmi.is  eða í síma 522-9267.

Starfsmenn Impru á Nýsköpunarmiðstöð

 Amanda Garner    verkefnisstjóri - Evrópumiðstöð
 Ari Þorsteinsson    verkefnisstjóri - á Höfn í Hornafirði
 Arna Lára Jónsóttir    verkefnisstjóri - Ísafirði
 Arnheiður Elísa Ingjaldsdóttir    verkefnisstjóri - Evrópumiðstöð 
 Arnheiður Jóhannsdóttir    verkefnisstjóri - Akureyri
 Bjarnheiður Jóhannsdóttir    verkefnisstjóri - brautargengi/ handleiðsla
 Berglind Hallgrímsdóttir    framkvæmdastjóri
 Bjarni Ellert Ísleifsson    verkefnissjóri - Austurland (Vopnafjörður til Djúpavogs)
 Björk Pálsdóttir    verkefnisstjóri á Höfn í Hornafirði
 Brynja Sigurðardóttir    verkefnisstjóri - námskeiða
 Elín Aradóttir    verkefnisstjóri - Akureyri
 Elvar K. Valsson          verkefnisstjóri - Reykjavík      
 Erla Sigurðardóttir    verkefnisstjóri - Húsavík
 Frosti Gíslason    verkefnisstjóri - Vestmannaeyjum
 Guðmundur Óli Hilmisson    verkefnisstjóri - Akureyri
 Kjartan Due Nielsen    verkefnisstjóri - Norrænt samstarf
 Kristín Halldórsdóttir    verkefnisstjóri - Evrópumiðstöð
 Kristján Óskarsson       verkefnisstjóri - námskeiða
 Selma Dögg Sigurjónsdóttir    verkefnisstjóri - Akureyri
 Sigríður Ingvarsdóttir    rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs
 Sigríður Ó Kristjánsdóttir    verkefnisstjóri - Ísafirði
 Sigurður Steingrímsson    verkefnisstjóri - Akureyri
 Solveig Ýr Sigurgeirsdóttir    verkefnastjóri - Húsavík
 Tinna Jóhannsdóttir    upplýsingafulltrúi
 Valur Árnason                         verkefnastjóri - Sauðárkrókur
 Þorsteinn Broddason       verkefnisstjóri - Sauðárkrókur
     
 





 

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica