31.1.2008
Átak til atvinnusköpunar
29.1.2008
Nýr starfsmaður á Evrópumiðstöð Impru
29.1.2008
Upplýsinga- og fjarskiptatæknisýning í Hannover
Dagana 4. - 9. mars næstkomandi stendur yfir upplýsinga- og fjarskiptatæknisýning Future Match CeBit í Hannover í Þýskalandi. Heimasíða sýningarinnar.
Evrópumiðstöð Impru er þátttakandi í Evrópsku tengslaneti, IRC (Innovation Relay Centre), sem hefur það að markmiði að stuðla að nýsköpun og samkeppnishæfni með því að leiða saman þekkingu, tækninýjungar og fólk.
25.1.2008
Mikill áhugi fyrir Vaxtarsprotaverkefninu í Þingeyjarsýslum
Mikill áhugi fyrir Vaxtarsprotaverkefninu í Þingeyjarsýslum
Vaxtarsprotar er stuðningsverkefni á vegum Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Verkefnið, sem hóf göngu sína í upphafi síðasta árs, hefur það að meginmarkmiði að styðja við fjölbreytta atvinnusköpun í sveitum. Á liðnu ári kom verkefnið til framkvæmdar á Suðurlandi, Ströndum og í Húnavatnssýslum, en á fyrri helmingi þessa árs verður fólki í sveitum Þingeyjarsýslna boðið að taka þátt í Vaxtarsprotum.
21.1.2008
Kynningarfundur um viðskiptasérleyfi í samstarfi við bandaríska sendiráðið
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og bandaríska sendiráðið standa fyrir kynningarfundi á Grand Hótel mánudaginn 28. janúar nk. um viðskiptasérleyfi (franchising) í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu sem haldin verður í apríl í Washington, Bandaríkjunum. Nýsköpunarmiðstöð er í samstarfi við viðskiptaþjónustu Bandaríkjanna vegna ráðstefnunnar.
17.1.2008
Ársfundur World Economic Forum fjallar um nýsköpun
Ársfundur samtakanna World Economic Forum (Alþjóðaefnahagsráðsins) fer fram í Davos, Sviss dagana 23. - 27. janúar og er þema fundarins samstarf og nýsköpun. Almenningur getur tekið þátt í umræðunum á YouTube myndbandavefnum með því að svara á myndbandi spurningunni „Hvað heldurðu að þjóðir, fyrirtæki eða einstaklingar þurfi að gera til að gera heiminn að betri stað árið 2008?" Nýsköpunarmiðstöð Íslands er samstarfsstofnun World Economic Forum á Íslandi. Sjá nánar
17.1.2008
Skráning á námskeið Impru
Impra á Nýsköpunarmiðstöð fer um víðan völl næstu mánuðina því á döfinni eru ýmis námskeið í höfuðborginni og á landsbyggðinni, þar á meðal hin sívinsælu Brautargengisnámskeið sem haldin eru í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði og Hellu. Sjá nánar
17.1.2008
Evrópumiðstöð eflir tengslanet sitt
Viltu finna samstarfsaðila erlendis? Koma þinni tækni eða nýjung á framfæri? Athuga möguleika á styrkjum Evrópusambandsins? Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands getur aðstoðað við allt þetta. Evrópumiðstöðin er nú komin í samstarf við Euro Info skrifstofu Útflutningsráðs.
17.1.2008
Fyrirtæki á frumkvöðlasetri NMÍ gerir mikilvægan samning
Nýlega samdi fyrirtækið Intelscan, sem hefur aðsetur á frumkvöðlasetri Impru á Nýsköpunarmiðstöð, við eitt stærsta fiskvinnslufyrirtæki landsins um kaup á tveimur mælitækjum sem fyrirtækið hefur þróað og er með einkaleyfi á.
17.1.2008
Evrópumiðstöð Impru á Sjávarútvegssýningunni í Brussel
Dagana 22.- 24. apríl nk. verður sjávarútvegssýningin Seafood Processing Europe og European Seafood Exposition í Brussel. Í tengslum við sýninguna skipuleggur Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands svokölluð fyrirtækjastefnumót þar sem íslensk fyrirtæki geta efnt til samstarfs við erlend fyrirtæki um tækninýjungar í sjávarútvegi og fiskiðnaði.
17.1.2008
Vísinda- og tækniráð hvetur til fjárfestinga í sprotafyrirtækjum
Vísinda- og tækniráð hefur samþykkt ályktun þar sem sérstök áhersla er lögð á sprota- og nýsköpunarfyrirtæki og mikilvægi þess að innlendir og erlendir fjárfestar veiti þeim öflugan stuðning.
17.1.2008
Impra til Ísafjarðar
Impra á Nýsköpunarmiðstöð hefur opnað starfsstöð á Ísafirði. Starfsmenn Impru á Ísafirði munu vinna að þróunar- og stuðningsverkefnum, veita almenna handleiðslu og sjá um upplýsingagjöf til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
10.1.2008
Nýr starfsmaður á Impru
Nýr starfsmaður, Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, hóf störf um áramót hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð á starfsstöðinni á Ísafirði.
Sigríður Ólöf er viðskiptafræðingur og starfaði áður sem verkefnisstjóri hjá Háskólasetri Vestfjarða.
Starfsmenn Impru bjóða Sigríði hjartanlega velkomna til starfa.
8.1.2008
Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar til eflingar ferðaþjónustu - Auglýst er eftir umsóknum
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til eflingar ferðaþjónustu á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar á veiðiheimildum.
Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu á ofangreindum svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, einstaklingar og fyrirtæki og er hámarksstyrkur til hvers verkefnis 8 milljónir kr
3.1.2008
Kynningarfundir um Vaxtarsprotaverkefnið í Þingeyjarsýslum
Haldnir verða þrír kynningarfundir um Vaxtarsprotaverkefnið í Þingeyjarsýslum nú í janúar. Þar munu áhugaverðir fyrirlesarar fjalla um tækifæri til atvinnusköpunar og segja frá reynslu sinni, auk þess sem verkefnið verður kynnt ítarlega.