Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð

26.3.2008

Ertu kona í nýsköpun og vilt stækka tengslanetið þitt?

Women Innovators for Europe standa fyrir ráðstefnu þann 17. apríl nk. þar sem áhersla verður lögð á myndun tengslanets milli kvenna í atvinnurekstri og tækni og vísindum. Færni í myndun tengslanets er grundvallaratriði í þróun og útvíkkun á atvinnurekstri og þessi ráðstefna er hugsuð sem vettvangur fyrir myndun nýrra tengsla.

18.3.2008

Nýsköpunar- og tæknistofnun Evrópu

 

Nú hefur framkvæmdarstjórn ESB tekið fyrsta skrefið að skipun stjórnar fyrir hina nýju Nýsköpunar- og tæknistofnun Evrópu. Markmiðið er að stofnunin hefji starfsemi sína síðar á þessu ári og að hún verði flaggskip fyrir nýsköpun og tækni í Evrópu.

7.3.2008

Nýr starfsmaður Impru á Höfn í Hornafirði

Ari Þorsteinsson hefur hafið störf hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn í Hornafirði. Ari er sjávarútvegsverkfræðingur og hefur langa reynslu af frumkvöðlastarfi og atvinnuuppbyggingu.

 

Við bjóðum Ara velkominn til starfa!

 

4.3.2008

Enterprise Europe Network

Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Útflutningsráð og Rannís eru samstarfsaðilar að Enterprise Europe Network (EEN), sem hefur það að markmiði að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki, rannsóknaraðila, opinberar stofnanir og háskóla við að efla samkeppnishæfni sína á alþjóðamarkaði.

3.3.2008

150 umsóknir bárust í Átak til atvinnusköpunar


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica