Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð
22.4.2008
Vistvæn nýsköpun - ESB auglýsir eftir umsóknum um styrki
Vistvæn nýsköpun (Eco-innovation) er tækni sem á að brúa bilið milli rannsókna & þróunar og markaðarins hvað varðar vistvæna tækni, þjónustu, vörur og stjórnunaraðferðir.
21.4.2008
Alþjóðlegur dagur hugverkaréttar
Einkaleyfastofan og Menntamálaráðuneytið vilja vekja athygli þína á ráðstefnu um virðingu fyrir hugverkarétti sem verður haldin í Norræna húsinu þann 23. apríl næstkomandi, kl. 9-12, í tilefni af Alþjóðlegum degi hugverkaréttar.
15.4.2008
Vantar þig samstarfsaðila, viltu byggja upp samstarfsnet á þínu rannsóknarsviði?
RANNÍS og Rannsóknarþjónusta Háskóla Íslands bjóða upp á kynningu á COST (European Cooperation in the field of Scientific and Technical Research) fimmtudaginn 17. apríl kl. 09:00-11:00. Kynningin verður haldin í Salnum, Tæknigarði H.Í. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Katrínar Valgeirsdóttur, katrin@rannis.is eða í síma 515-5800.
9.4.2008
Markáætlun 2009-2015: Öndvegissetur og rannsóknaklasar
Kynning á Hótel Sögu, mánudaginn 14. apríl kl. 9:00 til 10:30.
8.4.2008
Átta viðskiptahugmyndir í úrslit Innovit 2008
Úrslit í Frumkvöðlakeppni Innovit 2008 fyrir íslenska háskólanemendur og nýútskrifaða ráðast á laugardaginn en alls komust 8 viðskiptahugmyndir í úrslit keppninnar og munu frumkvöðlarnir kynna hugmyndir sínar og svara spurningum frammi fyrir yfirdómnefnd keppninnar í úrslitunum.
Sigurvegararnir hljóta að launum verðlaunagripinn Gulleggið 2008 og 1,5 milljónir króna í verðlaunafé.
| Upplýsingar um viðskiptahugmyndirnar átta |
4.4.2008
TENGSLANET IV - Völd til kvenna
TENGSLANET IV - Völd til kvenna - ráðstefnan verður haldin í fjórða sinn á Bifröst 29.-30. maí n.k. en skólinn fagnar 90 ára afmæli sínu í ár. Stjórnandi og skipuleggjandi Tengslanetsins er dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor. Það stefnir í metþátttöku nú eins og síðast en TENGSLANET III árið 2006 var stærsta ráðstefnan sem haldin var í íslensku viðskiptalífi það árið með þátttöku um 400 kvenna. Nú þegar hafa hátt í hundrað konur skráð sig enda gott að hafa allan varann á því gistirými er takmarkað. Á heimasíðu skólans má finna upplýsingar um gistingu á Hótel Hamri, Reykholti, Hraunsnefi, Hótel Borgarnesi, ensku húsunum og fleiri gististöðum auk sumarbústaða sem hægt er að fá leigða í nágrenni við skólann.
3.4.2008
ESB auglýsir eftir tillögum um aðgerðir á sviði orkumála
2.4.2008
Samþykkt að innleiða efnareglugerðina REACH á Íslandi
Samþykkt var 14. mars sl. að REACH reglugerðin (Registration, Evaluation, Authorisation and Restriction of Chemical substances) verði innleidd í EFTA löndunum á sama hátt og öllum ESB aðildarlöndunum.
2.4.2008
Gerð leiðbeininga vegna umsókna til ESB
1.4.2008
Skemmtileg Brautargengishelgi að baki
Um síðastliðna helgi hittust Brautargengishóparnir frá Akureyri, Hellu og Ísafirði í Nesbúð og dvöldu yfir nótt. Var þetta síðari helgi námskeiðsins þar sem hóparnir koma saman með það að markmiði að fræðast enn frekar og eins að kynnast öðrum athafnakonum.









