Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð
14.7.2008
Ný viðhorf á sviði tækni og nýsköpunar
Nýsköpunarmiðstöð Íslands tekur þátt í norrænu verkefni á sviði "converging technology", sem þýtt hefur verið sem samþætting eða samtvinnandi tækni.
10.7.2008
Evrópumiðstöð kynnir starfsemi sína í Eyjum
Anna Lúðvíksdóttir sérfræðingur Evrópumiðstöðvar Impru á Nýsköpunarmiðstöð heimsótti starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar í Vestmannaeyjum 10. júlí og fundaði með fulltrúum fyrirtækja, stofnana og háskóla í Eyjum.
8.7.2008
Hátt í 200 konur hafa lokið námskeiði í samningatækni
Nú hafa hátt í 200 konur lokið námskeiði í samningatækni fyrir konur á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Því má segja að Nýsköpunarmiðstöð hafi haft áhrif á lífsgæði og kjör 200 kvenna á höfuðborgarsvæðinu, en markmið námskeiðsins er að kynna konum grunnhugmyndir samningatækninnar og þjálfa þær í að nota samningatæknina í samskiptum sínum og samningum, sér og fyrirtækjum sínum eða atvinnurekendum til hagsbóta.
6.7.2008
180 milljónir í verkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Iðnaðarráðuneytið hafa gert með sér samkomulag um framkvæmd verkefna byggðaáætlunar 2008-2009 sem unnin verða á starfsstöðvum Nýsköpunarmiðstöðvar í Reykjavík, Vestmannaeyjum, Ísafirði og Höfn í Hornafirði.
3.7.2008
Styrkur úr Orkusjóði í varmadæluverkefni
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur fengið 2, 5 milljónir kr. styrk úr Orkusjóði til að kanna hvort mögulegt og hagkvæmt sé að koma upp miðlægri varmadælu fyrir fjarvarmaveitu Vestmannaeyja, en slík tækni myndi spara umtalsvert rafmagn sem nú er notað til veitunnar.
3.7.2008
Frumkvöðlanám fær góðar viðtökur
Tvær háskólastofnanir hafa bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða upp á frumkvöðlanám á háskólastigi sem hefst í haust.









