Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð

28.1.2009

Fab Lab ferð til Afghanistan

smari_xo.jpgÍ janúar 2009 ákvað sjö manna hópur Fab Lab notanda frá þremur löndum að fara á eigin vegum til Jalalabad í Afghanistan með háleit markmið um að byggja upp frítt þráðlaust internetsamband í borginni. Ferðalangarnir voru Bandaríkjamennirnir Amy Sun, Lucy Williams, Steve Arnold og Keith Berkoben, Suður-Afríkubúinn Carl Scheffler, og Íslendingarnir Andreas Guðmundsson og Smári McCarthy, sem er starfsmaður Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

20.1.2009

Vaxtarsprotaverkefninu lokið

Hópur fólks í Dalabyggð og Reykhólahreppi hefur á undanförnum mánuðum tekið þátt í verkefninu Vaxtarsprotum. Þátttakendur vinna allir að ákveðnum viðfangsefnum sem lúta að atvinnusköpun í heimabyggð. Um er að ræða fjölbreytt viðfangsefni m.a. á sviði matvælaiðnaðar og ferðaþjónustu.

19.1.2009

Nýtt átaksverkefni gerir fyrirtækjum kleift að ráða fólk á atvinnuleysisskrá

Verkefnið er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þátttaka í verkefninu er opin fyrirtækjum og einstaklingum með rekstur á öllu landinu.

18.1.2009

Rafrænt kerfi fyrir styrkumsóknir tekið í notkun

Impra hefur tekið í notkun nýtt kerfi fyrir styrkumsóknir.  Allar umsóknir hafa verið samræmdar og eru nú sendar inn rafrænt. 

15.1.2009

Verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu

Framhaldsumsóknir í þróunarverkefnið Gáttir hafa verið afgreiddar.  Auglýst var eftir þátttakendum í Gáttir – þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu vorið 2008.  51 umsókn barst og fengu 7 verkefni (16 umsóknir) forverkefnisstyrk allt að 1.000.000 til að vinna framhaldsumsókn.  Hóparnir skiluðu umsóknum í desember og verkefnisstjórn fundaði þann 9. janúar var þar úthlutað veglegum styrkjum til þriggja verkefna.

14.1.2009

Konur í útrásarhug - fyrsta verkefninu lokið

Átta konur luku þátttöku í verkefninu Konur í útrásarhug síðastliðinn föstudag. Verkefnið er samstarfsverkefni Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Útflutningsráðs og er því ætlað að styðja við fyrirtæki Brautargengiskvenna sem hyggja á útrás. Þetta var í fyrsta skiptið sem verkefnið var haldið en það hófst í október á síðasta ári.

14.1.2009

Yfir 50 manns sóttu fundi um Vaxtarsprotaverkefnið

Frá kynningarfundi Vaxtarsprotaverkefnisins á Breiðdalsvík.Haldnir voru kynningarfundir um Vaxtarsprotaverkefnið á þremur stöðum á Austurlandi þann 12. janúar síðastliðinn. Fundirnir voru haldnir á Vopnafirði, Breiðdalsvík og Egilsstöðum og voru vel sóttir,  en alls mættu ríflega 50 manns. Á fundunum var boðið upp á áhugaverð erindi auk þess  sem verkefnið var kynnt ítarlega. 

12.1.2009

Iðnaðarráðherra kynnir nýja styrki fyrir frumkvöðla

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra kynnti nýjungar í styrkjaumhverfi sprotafyrirtækja á kynningu Tækniþróunarsjóðs í Ráðhúsinu síðast liðinn föstudag.

12.1.2009

Gulleggið 2009 - Frumkvöðlakeppni Innovit

Gulleggið 2009 - Frumkvöðlakeppni Innovit fyrir íslenska háskólanema og nýútskrifaða er nú hafin öðru sinni. Frumkvöðlakeppni Innovit er haldin að fyrirmynd sambærilegrar keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum en sú keppni ein og sér hefur skapað þúsundir starfa og verið stökkpallur fyrir ný sprotafyrirtæki sem samanlagt eru verðmetin á yfir 20 milljarða bandaríkjadala.

9.1.2009

Mikil aðsókn í frumkvöðlasetur - frétt í Morgunblaðinu

8.1.2009

Vaxtarsprotar og nýsköpun, kynning í ráðhúsi Reykjavíkur 9. og 10. janúar

Tækniþróunarsjóður kynnir nýjar herslur í starfsemi sinni og sprotafyrirtæki kynna áherslur í starsemi sinni og sprotafyrirtæki kynna nýsköpun

6.1.2009

Stofnun og rekstur smáfyrirtækja námskeið á Akureyri

Námskeiðið Stofnun og rekstur er ætlað þeim sem búa yfir viðskiptahugmynd og hafa hug á að stofna fyrirtæki í kringum hana. Námskeiðið er einnig ætlað þeim sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki eða vilja auka rekstrarþekkingu sína.

 

5.1.2009

Námskeiðið Brautargengi hefst í febrúar

Námskeið fyrir konur sem viðlja hrinda viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna hér.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica