Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð

30.6.2009

Gögn frá Eurostars - EEN kynningarfundi

Á heitum sumardegi nú þegar sumarfrí fara að nálgast mættu þrjátíu manns á kynningarfund um Eurostars styrkáætlunina og Enterprise Europe Network sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarins buðu til morguninn 30. júní 2009. Sextán þeirra sem mættu voru frá fyrirtækjum.

29.6.2009

Norðursprotar verða til á Norðausturlandi

Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum, Alcoa Foundation, veitti í dag Háskólanum á Akureyri  52.500 dollara styrk til að hrinda úr vör nýsköpunarverkefni sem hefur hlotið heitið Norðursprotar.

Alcoa á Íslandi, Háskólinn á Akureyri og Impra á Nýsköpunarmiðstöð efndu síðla vetrar til samstarfs um þetta verkefni, sem er ætlað að styðja nýsköpunarhugmyndir einstaklinga í atvinnuleit á Norðausturlandi og geta leitt til frekari atvinnutækifæra í landshlutanum.

25.6.2009

Meistaradeild sprotafyrirtækja í Evrópu

Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður til opins kynningarfundar um Eurostars, nýjan möguleika á fjármögnun og kynnir í leiðinni þjónustu Enterprise Europe Network

23.6.2009

Umsóknir í safnasjóð

Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem falla undir safnalög nr. 106/2001.  Safnaráð úthlutar úr sjóðnum samkvæmt safnalögum og úthlutunarreglum ráðsinsUpphæð og fjöldi veittra styrkja fer eftir fjárveitingu á fjárlögum og umsóknum. 

22.6.2009

Skálað fyrir nýju fyrirtæki

Hópur á vegum Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja sótti námskeiðið Virkjum hugmyndir til framkvæmda vikuna 8.-12. júní.

22.6.2009

Fab Lab í Sjónvarpsfréttum

Fjallað var um Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í kvöldfréttum Sjónvarpsins laugardaginn 20. júní.

18.6.2009

Ánægjuleg þróun frumkvöðlasetra

Ánægjulegt er að sjá þróunina í starfsemi frumkvöðlasetra sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands tengist með einum eða öðrum hætti. Fyrir hrun bankakerfisins störfuðu samtals 35 manns hjá fyrirtækjum í tveimur frumkvöðlasetrum. Nú eru frumkvöðlasetrin orðin 8 og þar starfa 165 manns hjá 67 fyrirtækjum.

12.6.2009

Frumkvöðlamenntun og kreppa

Fræðslufundur um uppbyggingu og árangur af frumkvöðlakennslu í skólum í Finnlandi verður haldinn á 6. hæð í Borgartúni 35, þriðjudaginn 16. júní kl. 09.00-10.30.

Jouko Havunen frá Háskólanum í Vaasa í Finnlandi segir frá árangri þessa verkefnis sem ráðist var í m.a. sem viðbrögð við efnahagskreppunni sem gekk yfir Finnland árið 1990.

Mörg frumkvöðlafyrirtæki vaxa og dafna í kringum útflutning og erlend samskipti og því er auðug flóra af litlum og meðalstórum fyrirtækjum m.a. grunnur af heilbrigðu efnahagskerfi hvers lands.

11.6.2009

Verkefninu Konur í útrásarhug lokið í annað sinn

Mánudaginn 25.maí sl. luku átta konur verkefninu Konur í útrásarhug. Þetta er í annað skiptið sem verkefnið fer fram. en það er samstarfsverkefni Útflutningsráðs og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Verkefninu er ætlað að styðja við konur sem eru að stíga sín fyrstu skref í útflutningi.

11.6.2009

Vaxtarsprotar á Austurlandi

Þátttakendur í Vaxtarsprotaverkefninu vormisseri 2009Hópur fólks á Austurlandi hefur á undanförnum mánuðum tekið þátt í verkefninu Vaxtarsprotum. Þátttakendur vinna allir að ákveðnum viðfangsefnum sem lúta að atvinnusköpun í heimabyggð. Um er að ræða fjölbreytt viðfangsefni m.a. á sviði iðnaðar og ferðaþjónustu.

 

11.6.2009

Handan við Hornið

Nemendum í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu ásamt fleirum stóð til boða að taka þátt í námskeiðinu Sóknarbraut sem framhaldsskólinn ásamt Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Þekkingarneti Austurlands stóð fyrir nú á vorönn.  Námskeiðinu lauk með kynningu þátttakenda á verkefnum sínum og hugmyndum

10.6.2009

Krásir – matur úr héraði

Krásir - Matur úr héraði (Beint frá býli, beint úr sjó) er fræðslu og þróunarverkefni í heimavinnslu matvæla  sem Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Ferðamálastofa efna til með styrk frá Iðnaðarráðuneytinu. 

Verkefnisstyrkjum var úthlutað fyrr á árinu og dagana 8. og 9. júní  var haldið námskeið á Hólum í Hjaltadal þar sem þátttakendur í verkefninu fengu fræðslu  um hugmyndavinnu, þróun, vinnslu og meðferð matvæla. 

2.6.2009

Útskrift Brautargengis á Akureyri

Útskrift Akureyri vor 2009Þann 29. maí sl. luku 11 konur námskeiðinu Brautargengi á Akureyri og var útskriftin haldin á veitingastaðnum Friðriki V.  Þessar konur hafa undanfarnar 15 vikur unnið að fjölbreyttum viðskiptahugmyndum og má þar helst nefna ferðaþjónustu, hönnun og þjónustufyrirtæki sem m.a. sérhæfa sig í viðburðastjórnun og upplýsingamiðlun.

Berglind Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands ávarpaði samkomuna sem og Arnrún Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri veitingastaðarins Friðriks V,  og Margrét Blöndal frá Félagi Kvenna í atvinnurekstri.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica