Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Impru á Nýsköpunarmiðstöð

29.1.2010

Rannsóknasjóður - Breyttur umsóknarfrestur

Vakin er athygli á breyttum umsóknarfresti í Rannsóknasjóð fyrir styrkárið 2011. Nýr umsóknarfrestur verður þriðjudaginn 1. júní 2010 en undanfarin ár hefur fresturinn verið 1. október

27.1.2010

Brautargengi á Akureyri og Austurlandi

Vorið 2010 er áætlað að halda námskeiðið Brautargengi á tveimur stöðum á landinu, á Akureyri og Austurlandi.

27.1.2010

Sóknarbraut í Árnesi og Þorlákshöfn

Námskeiðið Sóknarbraut verður í boði í Þorlákshöfn og Árnesi vormisserið 2010.

26.1.2010

Styrkir til nýsköpunar - umsóknarfrestir í febrúar

Iðnaðarráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar og er umsóknarfrestur til og með 16. febrúar. Átakið styrkir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Sótt er um rafrænt á vef Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Við síðustu úthlutun sjóðsins í desember var úthlutað 38.700.000 kr. til 50 verkefna en 305 umsóknir bárust. Nánar um Átak til atvinnusköpunar

25.1.2010

Vaxtarsprotar í Eyjafirði - Kynningarfundir

Stuðningsverkefnið Vaxtarsprotar er samstarfsverkefni Framleiðnisjóðus landbúnaðarins og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem hefur það að markmiði að hvetja til fjölbreyttrar atvinnusköpunar í sveitum landsins.

Verkefnið nær til landsins alls en unnið er innan ákveðinna svæða hverju sinni. Það svæði sem verkefnið mun beinast að á fyrri hluta ársins 2010 er Eyjafjörður. Verkefnið er unnið í samstarfi við landbúnaðarráðunauta sem og atvinnuþróunarfélög á viðkomandi svæði. 

19.1.2010

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.
Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7.febrúar.

15.1.2010

Kynningarfundur um öndvegisrannsóknastyrki vel sóttur

 

Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands stóðu fyrir opnum kynningarfundi um Öndvegisrannsóknaráætlun Norðurlanda (Toppforskningsinitiativet) á sviði loftlags-, orku- og umhverfismála miðvikudaginn 13. janúar sl. á Grand Hótel Reykjavík.  Fundurinn var vel sóttur og fundargestir mjög áhugasamir.

5.1.2010

Umfjöllun um Orkubónda í fréttum RÚV

Orkubóndinn hefur nú slegið vel í gegn um allt land og í seinni fréttum Sjónvarpsins 4. janúar var rætt við Þorstein Inga forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar um námskeiðið.

Hér má sjá fréttina í heild sinni

Orkubóndinn verður haldinn næst á Egilsstöðum þann 12. og 13. janúar á Hótel Héraði. Dagskrá námskeiðsins


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.

Nýsköpunarmiðstöð á Facebook

Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica