Útgáfa
Ýmis rit sem Impra hefur gefið út:
Gerð viðskiptaáætlana (2008)
Gagnlegt rit sem gott er að hafa til hliðsjónar við gerð viðskiptaáætlana. Í ritinu er lesandinn aðstoðaður við að skilgreina hugmyndir sínar og gera áætlanir með það að markmiði að hugmyndin geti orðið að veruleika.
Stofnun fyrirtækja. Formreglur, réttindi og skyldur (2005)
Bókin er gefin út af Impru nýsköpunarmiðstöð í samvinnu við Ax hugbúnaðarhús og Háskólann í Reykjavík.
Þjónustugæði. Samkeppnisforskot og velgengni (2006)
Þjónusta skiptir æ meira máli í rekstri fyrirtækja. Á það jafnt við um fyrirtæki sem kalla má hefðbundin þjónustufyrirtæki og fyrirtæki sem framleiða og selja áþreifanlegar vörur. Margar aðferðir eru notað við að meta þjónustugæði, ýmist staðlaðar eða lagaðar að viðfangsefninu hverju sinni. Flestar aðferðirnar eiga það sameiginlegt að lagt er mat á það sem skiptir máli frá sjónarhóli þeirra sem þjónustunnar njóta.
Klasar. Samstarf í samkeppni (2004)
Stjórnendur fyrirtækja þurfa stöðugt að afla nýrrar þekkingar og hæfni til að viðhalda samkeppnisstöðu og tryggja vöxt og framgang fyrirtækja sinna. Á síðustu árum hafa menn í auknum mæli horft á samkeppni í víðari skilningi en áður og skoða ekki bara stöðu einstakra fyrirtækja heldur einnig samkeppnishæfni einstakra svæða eða landshluta. Víða um heim hefur myndast svæðisbundið samstarf fyrirtækja, klasar, sem gefur fyrirtækjum aukinn slagkraft í samkeppni og opnar þeim ný tækifæri til útrásar.
Vöruþróun (2003)
Stöðug vöruþróun er grundvallaratriði í rekstri fyrirtækja. Í þessu riti ef farið í gegnum vöruþróunarferlið á einfaldan og skilmerkilegan hátt. Ferlinu er skipt í tvo hluta; annars vegar að velja hugmyndir til að þróa og hins vegar að þróa hugmyndirnar í markaðshæfa vöru.
Markaðsáætlanir (2003)
Þetta rit á að aðstoða þá sem vilja á einfaldan og markvissan hátt tileinka sér fagleg vinnubrögð við gerð markaðsáætlana.
Verkefnastjórnun (2003)
Markmið þessa rits er að kynna hagnýtar leiðbeiningar við verkefnastjórnun sem frumkvöðlar og stjórnendur lítilla fyrirtækja geta nýtt sér til að takast á við lausnir ýmissa verkefna sem upp koma í rekstri fyrirtækja og vöruþróun.
Orðskíma (Desember 2005)
Orðskíma er samsafn orðskýringa í stjórnun. Markmið með þessu hefti er að gefa áhugasömum aðilum tækifæri til að fletta upp merkingum orðhugtaka.








