Beint á leiðarkerfi vefsins

Öflugur stuðningur við nýsköpun og tækniþróun

Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er að hvetja til nýsköpunar og efla framgang nýrra hugmynda í íslensku atvinnulífi. Nýsköpun er forsenda fyrir fjölbreytni íslensks atvinnulífs og undirstaða sterkrar samkeppnisstöðu þess.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands heyrir undir Iðnaðarráðuneytið og starfar eftir lögum um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun (nr. 75/2007). Forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar er prófessor Þorsteinn Ingi Sigfússon.

Fjölbreytt starfsemi í þágu atvinnulífsins

Kjarnastarfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar skiptist í tvö svið:

  • Impra á Nýsköpunarmiðstöð
    Öflug stuðningsþjónusta og þekkingarmiðlun fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki.
  • Tæknirannsóknir og -ráðgjöf
    Hagnýtar rannsóknir og tækniráðgjöf á sviði bygginga og mannvirkja, framleiðslu, líf- og efnistækni, efnagreininga og orku.

Starfsstöðvar

Vorið 2009 opnaði Nýsköpunarmiðstöð starfsstöðvar á Sauðárkróki, Húsavík og Egilsstöðum til viðbótar við starfsstöðvar á Akureyri, Höfn, Ísafirði, Reykjavík og Vestmannaeyjum. Starfsmenn miðstöðvarinnar eru um hundrað talsins, flestir í höfuðstöðvunum í Reykjavík. Sjá staðsetningu starfsstöðva

Öflug frumkvöðlasetur

Í kjölfar bankahruns 2008 opnaði Nýsköpunarmiðstöð Íslands fimm ný frumkvöðlasetur og nú eru setrin alls sjö. Nánar um frumkvöðlasetur

Opnunartími Nýsköpunarmiðstöðvar

Afgreiðsla Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er opin frá kl. 08:30 - 16:00 alla virka daga.

Merki Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Merki Nýsköpunarmiðstöðvar var hannað af EnnEmm árið 2007. Vinsamlegast athugið að Impra á Nýsköpunarmiðstöð er ekki með sérstakt lógó, heldur er merki Nýsköpunarmiðstöðvar notað fyrir stofnunina alla.

Merki Nýsköpunarmiðstöðvar (JPG, vector)

lógó-íslenska-vinstrijafnað 

Nánari upplýsingar veitir Árdís Ármannsdóttir markaðsstjóri í síma 522 9000 og 618 1001 og á netfanginu ardis@nmi.is

Ert þú með viðskiptahugmynd? Sendu okkur fyrirspurn


Fréttir

Samstarfssamningur erlendis- ný þekkingar- og tækniyfirfærsla hjá Evrópumiðstöð

Klasar og klasastjórnun - upptaka frá málþingi

Framadagar háskólanna 2012 - takk fyrir okkur

Fréttaveita NMÍ - RSS 2.0

Á döfinni

8. febrúar 2012 - Selfoss

Brautargengi á Selfossi

sjá nánar

10. febrúar 2012 - Vefsíðu Nýsköpunarmiðstöðvar

Átak til Atvinnusköpunar opið til umsóknar

sjá nánar

14. febrúar 2012

Styrkir til atvinnumála kvenna 2012

sjá nánar


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica