Bókasafn
Bókasafn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er sérfræðisafn á sviði bygginga og mannvirkja, umhverfistækni, efnistækni, örtækni og efnafræði.
Safnkostur
Hlutverk bókasafnsins er að styðja við starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Safnkosturinn samanstendur af erlendum og innlendum fagtímaritum, sérfræðiritum, stöðlum og eigin útgefnu efni.
Safnkostur bókasafnsins er ekki leitarhæfur á netinu.
Bókasafn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands greiðir fyrir aðgang að hvar.is sem er vefur landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum.
Verið er að vinna í því að koma skýrslum á vefinn. Hægt er að nálgast nokkrar skýrslur Nýsköpunarmiðstöðvar, Iðntæknistofnunar og Rb hér.
Þjónusta
Öllum er velkomið að leita til safnsins. Rit safnsins eru til afnota á staðnum og eru ekki lánuð út nema til starfsmanna.
Upplýsingafræðingur Nýsköpunarmiðstöðvar er Helga Halldórsdóttir. Hægt er að senda fyrirspurnir og beiðnir á netfangið bokasafn@nmi.is








