Erlent samstarf
Nýsköpunarmiðstöð Íslands tekur þátt í fjölmörgum erlendum samstarfsverkefnum með erlendum systurstofnunum, fyrirtækjum og samtökum.
Nýsköpunarmiðstöð er m.a. opinber samstarfsaðili World Economic Forum (Alþjóðaefnahagsráðsins) á Íslandi og sér um framkvæmd könnunar fyrir ráðið á meðal stjórnenda í íslensku atvinnulífi.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands starfrækir Evrópumiðstöð á sviði tækniyfirfærslu.
Eftirfarandi aðilar eru hluti af samstarfsneti Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands:
- CIB. Alþjóðasamtök rannsóknastofnana í byggingariðnaði.
- EARTO. Samtök evrópskra tæknirannsóknastofnanna, eru með skrifstofu í Brussel og gæta hagsmuna rannsóknastofnanna, sérstaklega gagnvart ESB.
- EBN. Evrópsk samtök um BIC netið, sem fjalla um nýsköpun, frumkvöðlasetur og frumkvöðla.
- EIRMA. Evrópsk samtök stjórnenda rannsókna innan fyrirtækja. Samtökin leggja mikla áherslu á þjálfun og umræðu um stefnur og strauma við stjórnun rannsókna hjá fyrirtækjum.
- ENBRI. Samstarf evrópskra byggingarannsóknastofnanna.
- EOTA. Félag evrópskra aðila er annast tæknivottanir. Aðilar tilnefndir af viðkomandi ríkistjórnum.
- Enterprise Europe Network - Evrópumiðstöð Impru leiðir starfssemi Enterprise Europe Network tengslanetsins á Íslandi. Markmið þess er að stuðla að nýsköpun og samkeppnishæfni með því að leiða saman þekkingu, tækninýjungar og fólk. EENstyður við nýsköpun, yfirfærslu tækni og þekkingar hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum en þjónar einnig tæknisetur, stór fyrirtæki, rannsóknastofnanir og háskóla.
- EUREKA. Samstarfsvettvangur á forsendum fyrirtækjanna. Umsóknir fara í mat heimalandanna. Tækniþróunarsjóður getur fjármagnað Eureka verkefni. Milliríkjasamstarf 38 Evrópulanda og Evrópusambandssins um tækni- og iðnþróun. Nánar
- ISLATEC Evrópumiðstöð - Stuðningur við frumkvöðlastarfssemi í hátækni meðal ný- eða nýlega útskrifaðra háskólastúdenta í eylöndum Evrópu. Verkefnið er styrkt að nokkru leyti af Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Megintilgangur er að þróa kennslu-og þjálfunarefni sérstaklega ætluðungum verkfræðingum og vísindamönnum.
- IVF. Sænsk rannsókna og þróunarstofnun.
- NBS. Samvinna norræna byggingarrannsóknastofnanna.
- NLN. Samrænt norrænt eftirlit með límtréframleiðslu.
- Nordisk Innovation Center. Norræna nýsköpunarmiðstöðin er samstarfsvettvangur norrænu þjóðanna á sviði nýsköpunar.
- Nordtest . Samvinna prófunaraðila á Norðurlöndum, fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni.
- NTR Norræna timburverndarráðið.
- PDMA. Product Development & Management Association. Fagsamtök á sviði vöruþróunar og nýsköpunar.
- PROMPT. Samstarfsverkefni jaðarsvæða Evrópu þar sem lögð er áhersla á sérstakar aðgerðir sem stuðla að aukinni ásókn og þátttöku smærri fyrirtækja í hagnýtum rannsóknarverkefnum sem tilheyra rammaáætlunum Evrópusambandsins.
- RILEM. Evrópusamstarf um efnisfræði steinsteypu.
- PERA Innovation (Bretlandi) Samstarfsaðili Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á sviði evrópskra rannsókna- og þróunarverkefna.
- I-Net. Samstarfsvettvang evrópska tækni- og rannsóknastofna.
- Seed Forum. Vettvangur fyrir íslensk fyrirtæki til þess að fá aðgang að alþjóðlegum fjárfestum. Reglulega eru haldin fjárfestingarmót víða um heim og tvisvar sinnum á ári hérlendis. Seed-Forum er í samstarfi við NMÍ, auk annarra hagsmunaaðila og háskóla t.d. Samtök iðnaðarins, Samtök sprotafyrirtækja, breska sendráðið, HR, HÍ o.fl.
- SINTEF Norsk rannsókna- og þróunarstofnun
- TEKNOLOGISK. Dönsk rannsókna- og þróunarstofnun.
- VTT. Finnsk rannsókna- og þróunarstofnun








