Eurostars-áætlunin
Eurostars er ný áætlun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu sem vinna sjálf að rannsóknum og þróun.
Opinn kynningarfundur 10. janúar 2012
Opinn kynningarfundur um Eurostars áætlunina var haldinn hjá Samtökum iðnaðarins 10. janúar 2012. Fundarstjóri var Davíð Lúðvíksson forstöðumaður hjá Samtökum iðnaðarins. Fundurinn var vel sóttur þrátt fyrir veðurofsann en alls 40 manns sóttu fundinn en 17 í viðbót voru skráðir á fundinn en komust ekki.
-
Snæbjörn Kristjánsson landsfulltrúi Eurostars kynnti umsóknarferlið
-
Helga Waage tæknistjóri hjá Mobilitus ehf. kynnti matsferlið og vinnu alþjóðlegu valnefndarinnar sem metur endanlega og raðar umsóknum í forgangsröð en Helga hefur átt sæti í þessari 10 manna valnefnd þar sem Eurostarslöndin 33 tilnefna bestu markaðs- og tækniþróunarsérfræðinga Evrópu til setu í nefndinni. Það er mikill heiður að Helga var valin til setu í nefndinni. Helga sagði frá vinnu valnefndarinnar.
-
Ragnar Jóhannsson hjá Matís ohf., og Jakob K. Kristjánsson hjá Prókatín ehf sögðu frá Eurostars verkefninu Microfeed sem var metið nr 10 í gæðaröðinni í 6.ttu lýsingu eftir umsóknum. Verkefnið er í samstarfi við Svía.
-
Kristleifur Daðason hjá Videntifier ehf. kynnti Eurostars verkefnið Forensic Image Identifier and Analyzer (FIIA) sem er í samstarfi við Breta og Frakka.
-
Að lokum kynnti Kristín Halldórsdóttir Enterprise Europe Network samstarfsnetið sem auðveldar leit að samstarfsaðilum.
Drög að samstarfssamningi - Beinagrind/Skeleton
Skráið ykkur sem matsmenn Eurostars áætlunarinnar
Næsti skilafrestur er 1. mars 2012 kl. 20:00 að staðartíma í Brussel.
Eurostars-verkefni eru rannsóknar- og þróunarverkefni sem geta verið á hvaða tæknisviði sem er. Þau eiga að vera til almenningsnota en ekki hernaðarnota. Markmið þeirra sé þróun á nýrri vöru, ferli og þjónustu. Eurostars-verkefni eru samstarfsverkefni milli a.m.k. tveggja lögaðila frá tveim Eurostars-löndum sem taka virkan þátt í áætluninni. Auk þess er skilyrði að aðalumsækjandinn í verkefninu sé lítið eða meðalstórt fyrirtæki (LMF) sem stundar sjálft rannsóknir og þróun og sé frá einu af Eurostarslöndunum. Fjármögnun verkefnanna er að mestu leyti frá þátttökulöndunum, á Íslandi frá Tækniþróunarsjóði en ESB leggur til viðbótar "top-up" til Eurostars-áætlunarinnar.
Hlutverk þátttakendanna í verkefninu skal vera verulegt eða að a.m.k 50% af verkþáttum verkefnisins sé unnið af þeim. Gert er ráð fyrir að nokkurt jafnræði sé með þátttakendunum og enginn einn aðili verkefnisins vinni meira en 75% af verkefninu.
Eurostars-verkefni eru unnin á forsendum fyrirtækjanna sem eru í forsvari og eru verkefnin nálægt markaði. Verkefnin geta verið að hámarki til 3ja ára og skyldi afrakstur verkefnisins sem vara eða þjónusta vera tilbúin á markað eftir 2 ár frá verkefnislokum. Undantekning frá þessu er fyrir verkefni á sviði heilbrigðistækni eða læknisfræði en þar skulu klínískar rannsóknir hefjast innan 2ja ára frá verkefnislokum.
Þau 33 lönd sem taka virkan þátt í Eurostars-áætluninni eru Austurríki, Belgía, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Ísland, Írland, Ísrael, Ítalía, Króatía, Kýpur, Lettland, Litháen, Lúxembúrg, Malta, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland og Þýskaland.
Hámarksstuðningur til íslensks hluta Eurostars verkefnis getur orðið
10 m.kr við 1 árs verkefni
20 m.kr við 2ja ára verkefni
30 m.kr við 3ja ára verkefni
Viðurkenndur kostnaður verkefnis er eins og hjá Tækniþróunarsjóði. Stuðningur sjóðsins hvert ár getur aldrei verið meiri en 50% af árlegum heildarkostnaði.
Framlag frá ESB er 25% af því sem Tækniþróunarsjóður leggur fram.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Eurostars, en öll samskipti eru um heimasíðuna, rafræn pdf- umsóknareyðublöð sem unnið er með á beinlínuformi og í lokin er umsókn send inn á síðunni.
http://www.eurostars-eureka.eu/
Nánari upplýsingar um EUROSTARS veitir:
Snæbjörn Kristjánsson, verkfr. landsfulltrúi Eurostars og Evreka (NPC)
Rekstrarstjóri rannsókna og þróunar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Sími: 522 9000 Beint: 522 9372
Netfang: skr@nmi.is








