Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
2.2.2012
Klasar og klasastjórnun - upptaka frá málþingi
2.2.2012
Framadagar háskólanna 2012 - takk fyrir okkur
2.2.2012
Tækjasjóður - Styrkir til rannsóknastofnana 2012
Tækjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir styrkárið 2012. Umsóknir eru rafrænar og er umsóknarfrestur til 15. mars 2012 (16:00). Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna.
2.2.2012
Rannsóknarnámssjóður - auglýst eftir umsóknum 2012
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna styrkársins 2012. Umsóknarfrestur rennur út 15. mars 2012 (kl. 16:00). Auglýst er eftir umsóknum um tvenns konar styrki en umsækjendum er bent á að lesa reglur og leiðbeiningar um sjóðinn áður er hafist er handa við að semja umsókn.
31.1.2012
Námskeiðið Verkefnastjórnun - lykill að árangri hefst 3. apríl n.k.
30.1.2012
Skráning í dagskrá Hönnunarmars
Opnað hefur verið fyrir skráningar í dagskrá HönnunarMars sem fram fram dagana 22. - 25. mars 2012. Aðildarfélög Hönnunarmiðstöðvar vinna nú að dagskrá sinni og mörg þeirra standa fyrir samsýningu félagsmanna sinna. Undirbúningshópurinn hvetur hönnuði í fagfélögum Hönnunarmiðstöðvar sem hyggjast taka þátt í dagskránni, að setja sig í samband við verkefnisstjóra viðkomandi félags. Aðrir þátttakendur geta skráð viðburð sinn skv. upplýsingum hér að neðan.
27.1.2012
Nýtt hráefni til stefnumótunar fyrir ferðaþjónustuaðila á Íslandi
Þverfaglegt samstarf í verkefninu Ísland allt árið hefur meðal annars skilað sér í útgáfu á fjölda skýrslna þar sem einstaka þættir í íslenskri ferðaþjónustu hafa verið greindir. Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íslandsstofa hafa stýrt greiningarvinnunni í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar en vinnan sjálf var unnin í samvinnu við Ferðamálastofu, Byggðastofnun og Háskólann á Hólum.
27.1.2012
Norðaustan 10 - sýning opnuð á Húsavík
24.1.2012
Átaksverkefninu lokið
Átaksverkefninu um markvissa upplýsingamiðlun um fjármögnunarleiðir innan norræns samstarfs er nú lokið. Verkefnið var sett af stað til tveggja ára og lauk 31. desember 2011.








