Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
8.7.2010
Veittur heiður frá Sherbrooke háskólanum í Kanada
Dr. Ólafi H. Wallevik forstöðumanni grunnrannsókna á Nýsköpunarmiðstöð og prófessor við Háskólann Í Reykjavík var veittur heiðurstitill við háskólann í Sherbrooke í Kanada 29. júní. Ólafur hlaut titilinn professeur associé sem er heiðurstitill án formlegra skuldbindinga. Skólinn veitir titilinn prófessorum sem eru leiðandi og hafa átt gott samstarf við skólann. Vert er að nefna að Ólafur fékk viðurkenninguna „Grand Prix québécoins du béton" frá steinsteypusambandi Quebeck (L´Association béton Québeck








