Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

12.7.2010

Allir vinna: Hvatningarátak um atvinnuskapandi framkvæmdir

Allir vinna - nú er rétti tíminn

Nýsköpunarmiðstöð Íslands er þátttakandi í átakinu Allir vinna sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins standa að til að vekja athygli á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattfrádrætti vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði og frístundahús. Nýsköpunarmiðstöð og fyrirrennari hennar Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hafa um árabil gefið út ýmiss konar efni bæði fyrir fagaðila og húseigendur sem geyma mikilvægar upplýsingar um viðgerðir og viðhald bygginga. Hluti efnisins er aðgengilegur án endurgjalds á vefnum en einnig eru fjölmörg RB-blöð og skýrslur fáanlegar í vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar. Nú er búið að taka saman handhægt yfirlit yfir þessar upplýsingar. Skoða upplýsingar og útgáfu á sviði viðhalds bygginga og mannvirkja

Í haust verður jafnframt boðið upp á námskeiðið Viðhald og verðmæti víða um land þar sem fjallað verður um viðgerðir húseigna.

Nánari upplýsingar um skattfrádrátt og endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda má sjá á heimasíðu átaksins, Allirvinna.is.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica