Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

31.8.2010

Dagskrá fyrir viðhald og verðmæti á Akureyri 8. september!

Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður á opið námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna 8. september frá kl. 14:00 - 18:00 í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Námskeiðið er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og Íbúðalánasjóðs við fagfólk og sérfræðinga frá verkfræðistofum, Orkusetrinu, Rafiðnaðarskólanum, Húsi og heilsu, Iðunni - fræðslusetri og heimamenn í hverjum landshluta fyrir sig.

Á námskeiðinu er fjallað um mikilvæga viðhaldsþætti svo sem raflagnir, leka, loftgæði, húsasótt, hitastýringu, orkunotkun og mat á viðhaldsþörf. Þátttakendur geta valið um og flakkað á milli fjögurra málstofa sem allar tengjast viðhaldi og vörslu þeirra verðmæta sem felast í húseignum. Þátttökugjald er ekkert og allir velkomnir.

Dagskrá námskeiðs er eftirfarandi:


Kl. 14: 00 Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra býður gesti velkomna ásamt forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar og stjórnarformanni Íbúðalánasjóðs.

Málstofa 1 - Húsið mitt
14:20 Gluggar, Jón Sigurjónsson - NMÍ
14:35 Steyptir veggir, Helgi Hauksson - NMÍ 
15:05 Vegg-og þakklæðningar, Jón Sigurjónsson - NMÍ
15:20 Kaffihlé

Málstofa 2 - Að lækka orkureikninginn
14:20 Orkunýting, Sigurður Friðleifsson - Orkusetur
14:35 Orkusparnaður, Sigurður Friðleifsson - Orkusetur
14:50 Áhrif endurbóta, Sigurður Friðleifsson - Orkusetur 
15:20 Kaffihlé

Málstofa 3 - Lagnir
15:45 Raflagnir, Stefán Sveinsson - Rafiðnaðarskólinn
16:00 Neysluvatn, Rúnar Steinsen - Efla 
16:15 Frárennsli, Rúnar Steinsen - Efla

Málstofa 4 - Lífsgæði
15:45 Aðgengi allra, Þórainn Magnússon - Félagsbústaðir
16:00 Sveppir, Guðfríður Gyða Eyjólfsdóttir
16:15 Raki og mygla, Sylgja Sigurjónsdóttir - Hús og heilsa 

Kl. 16:30 Erindi um framkvæmdir, lán, endurgreiðslur og skattamál
Kl. 16:45 TENGSLATORG - myndun tengsla við meistara og sérfræðinga
Kl. 18:00 Námskeiðslok

Í lok námskeiðs kl. 16:45 verður slegið upp tengslatorgi þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að fá svör og ráðgjöf hjá sérfræðingum. Á torginu í Hofi munu fjölmargir iðnmeistarar, verkfræðistofur, bankar og þjónustuaðilar í byggingariðnaði veita upplýsingar ogfræðslu um allt sem lýtur að viðhaldi, endurbótum á húsnæði og að auknum lífsgæðum á heimilum og vinnustað. Fulltrúar fyrirtækja sem hafa áhuga á að taka þátt í tengslatorginu eru hvattir til að hafa samband við Sigurð Steingrímsson á netfangið sigurdurs@nmi.is eða í síma 522 9435.

Skráning á námskeið á Akureyri 

Upplýsingar og útgáfa um viðhald bygginga og mannvirkja


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica