Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

3.9.2010

Uppskeruhátíð á Keldnaholtinu

Það var glaðbeittur hópur einstaklinga sem kom saman í húsakynnum Nýsköpunarmiðstöðvar á dögunum þegar sumarstarfsmenn voru hvattir til að stíga á svið og kynna þau verkefni sem þeir hafa verið að vinna að í sumar. Uppskeruhátíðin var ætluð öllum þeim starfsmönnum sem ráðnir voru í tengslum við átaksverkefni á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis og Vinnumálastofnunar í upphafi sumars. Þessir starfsmenn hafa verið að sinna ýmsum verkefnum á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar eða hjá þeim fyrirtækjum sem aðstöðu hafa á frumkvöðlasetrum miðstöðvarinnar.

Uppskeruhátíð sumarstarfsmanna 2010

Mikil breidd var í þeim verkefnum sem kynnt voru. Kynntir voru meðal annars möguleikar á sjávarfallavirkjun í Þorskafirði og verkefni sem snéru að innlendri og erlendri markaðssetningu hjá fyrirtækjum eins og Whosemoose og Remake Electric ásamt mörgum spennandi þróunarverkefnum. Um leið og sumarstarfsmenn og mögulegir framtíðarstarfsmenn fyrirtækjanna fengu tækifæri til að kynna viðfangsefni sín skapaðist grundvöllur fyrir frekari þverfaglega samvinnu og samstarf.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica