Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
6.9.2010
Nýir samningar um þekkingar- og tækniyfirfærslu
Fjórir nýir samningar um þekkingar- og tækniyfirfærslu (transnational technology transfer) hafa orðið til á síðustu mánuðum í gegnum Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Þrír samninganna tengjast rannsóknasamstarfi og sá fjórði yfirfærslu á nýrri, íslenskri tækni til Möltu.
Evrópumiðstöðin hefur það að meginmarkmiði að koma á samvinnu milli evrópskra fyrirtækja, háskóla og rannsóknastofnana. Miðstöðin aðstoðar við að vakta tækni og þróunarframvindu á mismunandi greinum og finna tækifæri til að mynda góð viðskipta-og þróunartengsl. Frekari upplýsingar um samingana og Evrópumiðstöðina er að finna á heimasíðunni: http://een.is/








