Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
20.1.2010
Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar
Hver eru sóknarfærin í íslensku atvinnulífi? Hvernig getum við aukið lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum?
Á ráðstefnunni Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag þann 28. janúar munu grasrótarhópar, samtök og hagsmunaaðilar fjalla um sóknarfæri og áherslur sem aukið geta lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum. Vinna við sóknaráætlun ríkisstjórnarinnar, 20/20 Sóknaráætlun, gengur samkvæmt áætlun og í upphafi árs er lögð áhersla á að fá yfirsýn yfir þá stefnumótun sem unnið hefur verið að víðs vegar í samfélaginu frá hruni og hefja umræðu um lykilspurningar og næstu skref. Á ráðstefnunni verður kallað eftir sjónarmiðum fjölbreyttra aðila um framtíðartækifæri og áherslur til sóknar. Nánari upplýsingar um Sóknaráætlun
Ráðstefnan verður haldin á Radisson SAS Saga hótel 28. janúar kl. 13:00 - 17:00.
Ráðstefnan er á vegum stýrihóps 20/20 Sóknaráætlunar og forsætisráðuneytisins, en Nýsköpunarmiðstöð hefur aðstoðað við skipulagningu hennar.
Ráðstefnan er öllum opin - vinsamlegast tilkynnið þátttöku á nmi@nmi.is
Dagskrá
- Ávarp forsætisráðherra - Jóhanna Sigurðardóttir
- Niðurstöður Þjóðfundar - Guðjón Már Guðjónsson frá Hugmyndaráðuneytinu
- Samtök atvinnulífsins - Vilhjálmur Egilsson
- Alþýðusamband Íslands - Gylfi Arnbjörnsson
Opnar umræður: Hvernig endurnýjum við traust í samfélaginu? Í opnum umræðum mun fjöldi álitsgjafa úr ýmsum áttum gefa viðbrögð við erindum frummælenda.
- Samtök ferðaþjónustunnar - Erna Hauksdóttir
- Samtök iðnaðarins - Jón Steindór Valdimarsson
- Bændasamtök Íslands - Haraldur Benediktsson
- Landssamband íslenskra útvegsmanna - Sveinn Hjörtur Hjartarson
Opnar umræður: Hvernig tökumst við á við kreppuna og byggjum upp öflugt atvinnulíf í sátt við samfélag og umhverfi?
- Vísinda og tækniráð - Guðrún Nordal Vísindanefnd og Þorsteinn Ingi Sigfússon Tækninefnd
- Niðurstöður Sprotaþings - Davíð Lúðvíksson frá Samtökum iðnaðarins
- Upplýsingatækni - Þórólfur Árnason
- Viðskiptaráð - Finnur Oddsson
Opnar umræður: Hver eru brýnustu verkefnin framundan?
Fundarstjórn: Dagur B. Eggertsson
Á meðal þátttakenda í opnum umræðum eru: Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Ragnhildur Geirsdóttir Promens, Halla Helgadóttir Hönnunarmiðstöð Íslands, Guðmundur Gunnarsson Rafiðnaðarsambandi Íslands, Inga Hlín Pálsdóttir Útflutningsráði, Sif Vígþórsdóttir Norðlingaskóla, Páll Ásgeir Davíðsson Eþikos, Hilmar Veigar Péturssoon CCP, Hjálmar Gíslason frumkvöðull, María Ellingsen leikkona...








