Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

29.1.2010

Tímamót í íslenskri orkusögu

Rafmagn var í fyrsta skipti á Íslandi framleitt úr gróðurhúsagasi föstudaginn 22. janúar á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og var rafmagnið notað til að knýja ljósaperur og fartölvu. Í vetur hafa tveir nemendur í meistaranámi við RES skólann á Akureyri unnið að verkefni á Nýsköpunarmiðstöð undir leiðsögn prófessors Þorsteins I. Sigfússonar eðlisfræðings og forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar. Verkefnið er unnið í náinni samvinnu við sprotafyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) sem notast við vetni og koltvísýring við framleiðslu sína á metanóli á vökvaformi. Í verkefninu var reynt að knýja efnarafala til þess að framleiða rafmagn úr metanólinu.

Metanólið er framleitt hér heima með því að nota vetni úr endurnýjanlegri raforku og tengja það við C02, sem má fá úr jarðhitaborholum eða losun stóriðjunnar. Úr verður grænt metanól sem hægt er að nota á bíla og önnur farartæki og gæti sparað samgöngukerfi eða fiskveiðar mikla orku. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að innlend framleiðsla á metanóli sé góður kostur sem getur komið í stað innflutts metanóls og annars eldsneytis og sparað þar með mikinn gjaldeyri.

Grænt metanól
Meistaranemarnir Lapinski og Kluska ásamt starfsmönnum CRI og Nýsköpunarmiðstöðvar.

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica