Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

21.6.2010

Styrkir og stuðningsmöguleikar innanlands og erlendis

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur tekið saman yfirlit yfir innlenda, norræna og evrópska styrkja- og stuðningsmöguleika til að auðvelda einstaklingum, fyrirtækjum og rannsóknaaðilum að sjá hvað í boði er. Um er að ræða allt frá litlum frumkvöðlastyrkjum til stórra evrópskra áætlana í fjölbreyttum atvinnugreinum, t.d. á sviði menningar og skapandi greina, orku, byggðamála og nýsköpunar. Einnig er í yfirlitinu listi yfir frumkvöðlasetur á Íslandi og ýmsar aðrar upplýsingar um stuðningsumhverfi nýsköpunar.

Yfirlitið yfir norræna styrki og stuðningsmöguleika er sérstaklega yfirgripsmikið, en það er hluti af vinnu í átaksverkefni sem hefur það að markmiði að auka sókn Íslendinga í norræna stuðningsmöguleika.

Þetta er í fyrsta sinn sem svo víðtækt yfirlit yfir styrkja- og stuðningsmöguleika íslensks atvinnulífs er sett fram. Samantektin er í stöðugri þróun og eru allar athugasemdir um efni sem á heima á síðunni eða lagfæringar velkomnar á netfanginu nmi@nmi.is.

Skoða styrki og stuðningsmöguleika


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica