Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
9.7.2010
Sparnaðarvirkjanir vekja athygli
Í hádegisfréttum Bylgjunnar 9. júlí var fjallað um grein Þorsteins Inga Sigfússonar forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og prófessors um notkun varmadæla, en Þorsteinn telur að þær geti komið af stað næstu orkubyltingu. Varmadælur henta vel á stöðum þar sem ekki er nægur jarðhiti til beinnar húshitunar.








