Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

11.8.2010

Ný úrræði fyrir nýsköpunarfyrirtæki - umsóknarfrestur 1. september

Fyrirtæki sem vilja nýta sér ný úrræði sem fela í sér skattfrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar og skattafslátt til fjárfesta þurfa að sækja um staðfestingu hjá Rannís sem viðurkennd nýsköpunarfyrirtæki fyrir 1. september. Umsóknareyðublað er í vinnslu hjá Rannís og verður opnað á næstu dögum.

Um er að ræða úrræði sem samþykkt voru með lögum í desember 2009 og ætlað er að bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja. Annars vegar verður viðurkenndum nýsköpunarfyrirtækjum veittur réttur til skattfrádráttar vegna kostnaðar við rannsóknar-og þróunarstarf í nýsköpunarverkefnum. Hins vegar er hvatt til fjárfestinga í viðurkenndum nýsköpunarfyrirtækjum gegn skattafslætti til fjárfesta.

Fyrirtæki í öllum atvinnugreinum geta sótt um og fengið staðfestingu sem nýsköpunarfyrirtæki, að uppfylltum skilyrðum laganna. Lykilatriði í skilgreiningu laganna á „nýsköpunarfyrirtæki" er að geta sýnt fram á að á tveimur af síðustu þremur árum hafi rannsóknar-og þróunarkostnaður numið meira en 1,5% af rekstrartekjum, eða -kostnaði, eftir því hvor fjárhæðin er hærri, eða að varið hafi verið a.m.k. 40 milljónum króna til rannsókna og þróunarstarfs á ári undanfarin tvö ár.

Í umsókn er um tvo kosti að velja. Annars vegar staðfesting sem leiðir til skattfrádráttar vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar samkvæmt 5. grein laganna, og hins vegar heimild vegna hlutafjáraukningar sem veitir heimild til skattafsláttar fjárfesta samkvæmt 6. grein laganna. Sami umsækjandi getur sótt um hvort tveggja.

Skattfrádráttur miðast við hvert verkefni og er stofn til útreiknings að hámarki 50 m. kr. fyrir verkefni (75 m. kr. með samstarfi við háskóla, rannsóknastofnanir eða aðra viðurkennda aðila). Skattfrádráttur nemur 15% af stofni til útreiknings, þ.e. að hámarki 7,5 m. kr. miðað við hámarksheimild. Skattfrádráttur (endurgreiðsla) er óháður því hvort fyrirtækið greiðir skatt eða ekki. Hvert fyrirtæki getur verið með fleiri en eitt verkefni á sama tíma, en sækja verður um hvert verkefni sérstaklega.

Skattafsláttur til fjárfesta vegna hlutabréfakaupa miðast við fjárfestingu á hverju ári að verðmæti keyptra hlutabréfa umfram verðmæti seldra í sams konar félögum, að hámarki 300.000 kr. hjá einstaklingi og 600.000 kr. hjá hjónum. Sams konar heimild er veitt hlutafélögum og einkahlutafélögum með fjárfestingu að fjárfestingu að hámarki 15.000.000 kr. á hverju ári.

Nánari upplýsingar á vef Rannís

Lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki

Lög um breytingu á lögum um tekjuskatt

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica