Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
25.8.2010
Nýr markaðsstjóri
Árdís Ármannsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og gæðastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Árdís mun sjá um útgáfu og markaðsmál, gæðamál og hafa umsjón með vefsíðu miðstöðvarinnar. Árdís er markaðsfræðingur að mennt með BS próf frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í stefnumótun, stjórnun og leiðtogafræðum frá viðskiptaháskólanum í Árósum.








