Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

27.1.2012

Nýtt hráefni til stefnumótunar fyrir ferðaþjónustuaðila á Íslandi

Þverfaglegt samstarf í verkefninu Ísland allt árið hefur meðal annars skilað sér í útgáfu á fjölda skýrslna þar sem einstaka þættir í íslenskri ferðaþjónustu hafa verið greindir. Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íslandsstofa hafa stýrt greiningarvinnunni í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar en vinnan sjálf var unnin í samvinnu við Ferðamálastofu, Byggðastofnun og Háskólann á Hólum.

Skýrslurnar sem hér um ræðir eru átta talsins, þrjár þeirra beinast að innviðum ferðaþjónustunnar og fjalla meðal annars um samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar á alþjóðavísu, niðurstöður netkönnunar sem unnin var síðastliðið sumar og auk þess um sérstöðu ákveðinna svæða og umfjöllun um klasa og almenna tölfræði. Fimm skýrslur voru unnar á sviði hagnýtra viðmiða (e.benchmarking) þar sem gerð var úttekt á stöðu fimm landa á sviði ferðaþjónustu. Samanburðarlöndin voru Finnland, Kanada, Noregur, Nýja Sjáland og Ísland. Allar þessar skýrslur er hægt að nálgast gjaldfrjálst á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Íslandsstofu og hjá Ferðamálastofu.

Meginmarkmið þessarar vinnu er að afla hráefni í almenna stefnumótun fyrir greinina en jafnframt nýtist þessi vinna einstaka ferðaþjónustuaðilum við að móta sér ramma um sína eigin starfsemi og einstaka samstarfsverkefnum við að ná enn frekari árangri. Ljóst er að verulegur vöxtur er í ferðaþjónustu hér á landi og býr greinin við alla kosti og galla þess að vaxa hratt. Áskorunin snýst ekki eingöngu um að lengja ferðamannatímabilið og brúa tómarúm vetrarmánuðanna heldur einnig að greina hvort greinin sé að ná til þeirra ferðamanna sem hún sækist eftir og hvernig eigi að standa að uppbyggingu á innviði, upplifun og afþreyingu. Í þessu sambandi er nauðsynlegt að líta til framtíðar, ekki bara til næsta tímabils og miða uppbyggingu og markaðssetningu með hliðsjón af framtíðartækifærum.

Nefna má nokkur atriði sem huga þarf sérstaklega að í þessu sambandi. Það fyrsta er arðsemi greinarinnar sem ekki er viðunandi. Meginástæða þess er léleg nýting fjárfestingar í greininni á lágönn. Fleira hefur áhrif og má þar nefna markhópaval greinarinnar og val og skipulag upplifunar og afþreyingar. Gæðamál í viðtækri merkingu þess orðs er annað atriði. Þarna kemur innri viðmið um góða stjórnunarþætti og þjónustu ferðaþjónustustaða inn í myndina, umgengni um náttúruperlur og uppbygging á þeim. Síðan og ekki síst er það þolinmæði og þrautseiga að leyfa langtímasjónarmiðum að ráða för við þróun greinarinnar og markaðssetningu og nýta þannig sem best það fjármagn sem greinin hefur til umráða til að ná ásættanlegum árangri. Meðal annars á grundvelli framangreindra gagna er núna verið að vinna að stefnumótun greinarinnar og verða umrædd atriði tekin til umfjöllunar þar og viðeigandi ráðstafanir gerðar. Á velheppnuðu Ferðamálaþingi sem haldið var á Ísafirði á haustmánuðum 2011 komu fram mörg áhugaverð sjónarmið og nýjar víddir sem ekki hafa verið ofarlega í umræðunni síðustu ár. Skoða má erindin á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Ísland: www.nmi.is. Nauðsynlegt er fyrir grein eins og ferðaþjónustuna að tileinka sér nýja hugsun við lausn sinna viðfangsefna í stað hefðbundinna lausna þar að segja „að gera meira í dag miðað við það sem gert var áður".

Höfundur er Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri Mannauðs- og markaðsstofu á Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica