Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
17.1.2008
Impra til Ísafjarðar
Impra á Nýsköpunarmiðstöð hefur opnað starfsstöð á Ísafirði. Arna Lára Jónsdóttir og Sigríður Kjartansdóttir hafa tekið til starfa hjá Impru og verða fyrst um sinn með aðsetur í Þróunarsetri Vestfjarða ásamt ellefu öðrum mennta-, rannsókna- og þjónustustofnunum.
"Það er frábært að vera komin með tvo starfsmenn á Ísafirði, það mun auðvelda Impru mjög að efla samskipti og stuðning við fyrirtæki um alla Vestfirði. Við vonum líka að starfsmennirnir á Ísafirði muni styrkja starf Impru um allt land og auka þannig tengslanet fyrirtækja á öllu landinu," segir Berglind Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð.
Verkefni Örnu Láru og Sigríðar verða einkum á sviði þróunar- og stuðningsverkefna auk almennrar handleiðslu og upplýsingagjafar til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Arna Lára er menntaður stjórnmálafræðingur og er að ljúka meistaraprófi í viðskiptafræði. Hún starfaði áður hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Sigríður er menntaður viðskiptafræðingur. Hún starfaði áður hjá Háskólasetri Vestfjarða og rak ferðaskrifstofuna Vesturferðir.








