Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
17.1.2008
Vísinda- og tækniráð hvetur til fjárfestinga í sprotafyrirtækjum
Vísinda- og tækniráð hefur samþykkt ályktun þar sem sérstök áhersla er lögð á sprota- og nýsköpunarfyrirtæki og mikilvægi þess að innlendir og erlendir fjárfestar veiti þeim öflugan stuðning. Í ályktuninni, sem gerð var á haustfundi ráðsins 18. desember, eru teknar fyrir fjölmargar áskoranir sem blasa við íslensku þekkingarsamfélagi á næstu árum. Þar kemur meðal annars fram að menntun, rannsóknir, þróun og nýsköpun séu grundvallaratriði í sókn á alþjóðlegum vettvangi og að nýsköpun og öflugt vísindastarf muni skipta sköpum í samkeppni þjóða á næstu árum og áratugum. Til að styðja við nýsköpun sé nauðsynlegt að gera nýsköpunarstarfsemi að álitlegum fjárfestingakosti.
„Vísinda- og tækniráð hvetur íslensk fjármálafyrirtæki til aukinna fjárfestinga í sprotafyrirtækjum. Auðvelda þarf erlenda þátttöku í fjármögnun slíkra fyrirtækja. Aukið fjármagn til rannsókna, þróunar og nýsköpunar eflir atvinnugreinar og fjölgar störfum sem skila fjárfestingunni margfaldri," segir meðal annars í ályktuninni (bls. 5).
Einnig kemur fram að opinberir samkeppnissjóðir sem styrkja nýsköpun taka að jafnaði ekki þátt í kostnaði við markaðssetningu á nýrri vöru og að þeim þætti sé vísað til fjárfesta og markaðarins. Hins vegar hefur reynslan sýnt að fjárfestar koma lítið að fjármögnun sprotafyrirtækja þegar þau eru að koma undir sig fótunum og hefur verið talað um markaðsbrest í því tilliti. Markaðsbrestur er ein helsta orsök þess að þrátt fyrir gróskumikið frumkvöðlastarf hér á landi ná fá sprotafyrirtæki því að verða fullburða fyrirtæki. Því er nauðsynlegt að hvetja fjármálafyrirtæki til að fjárfesta í sprotafyrirtækjum.
Geir H. Haarde forsætisráðherra er formaður Vísinda- og tækniráðs. Auk hans sitja í ráðinu iðnaðarráðherra, menntamálaráðherra og fjármálaráðherra, ásamt 14 einstaklingum frá rannsóknarstofnunum, háskólum og úr atvinnulífinu. Hallgrímur Jónasson framkvæmdastjóri sérverkefna hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands er formaður tækninefndar ráðsins.
Ályktunina má finna í heild sinni hér.
Nánari upplýsingar um Vísinda- og tækniráð er að finna á vef ráðsins.








