Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

17.1.2008

Fyrirtæki á frumkvöðlasetri NMÍ gerir mikilvægan samning

Nýlega samdi fyrirtækið Intelscan, sem hefur aðsetur á frumkvöðlasetri Impru á Nýsköpunarmiðstöð, við eitt stærsta fiskvinnslufyrirtæki landsins um kaup á tveimur mælitækjum sem fyrirtækið hefur þróað og er með einkaleyfi á. Um er að ræða búnað fyrir rauntíma vatnsinnihaldsmælingar í fiskimjölsverksmiðjunum HB Granda á Vopnafirði og á Akranesi.

Intelscan hannar, framleiðir og selur mælitækin sem nýtast við sjálfvirkar vatnsinnihaldsrannsóknir, meðal annars í matvælaiðnaði. Fyrirtækið hefur einkaleyfi á örbylgjutækni sem gerir framleiðendum kleift að fylgjast með vatnsinnihaldi í vöru sinni á rauntíma, um leið og hún er í framleiðslu. Slíkt sparar tímafrekar rannsóknir á tilraunastofu auk þess sem betri stýring næst á framleiðsluferli, betri gæði nást og hægt er að ná fram umtalsverðum orkusparnaði.

„Það er frábært að geta séð rakastigið í rauntíma og notað þetta fyrir rekjanleika, mjölkaupandi vill sjá hvernig rakinn hefur verið á framleiðslustiginu, að hann sé eins jafn og hægt er. Nú getum við sýnt fram á það með línuriti í rauntíma sem ekki var hægt áður," segir Sveinbjörn Sigmundsson verksmiðjustjóri á Vopnafirði.

Vefur IntelScan


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica