Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
17.1.2008
Ársfundur World Economic Forum fjallar um nýsköpun
Ársfundur samtakanna World Economic Forum fer fram í Davos, Sviss dagana 23. - 27. janúar og er þema fundarins samstarf og nýsköpun. Á fundinum koma saman stjórnmálaleiðtogar, viðskiptafrömuðir, háskólafólk og aðrir leiðtogar, þar á meðal Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Breta. Almenningur getur tekið þátt í umræðunum á YouTube myndbandavefnum með því að svara á myndbandi spurningunni „Hvað heldurðu að þjóðir, fyrirtæki eða einstaklingar þurfi að gera til að gera heiminn að betri stað árið 2008?" Vinsælustu myndböndin sem svara Davos spurningunni fá áheyrn og umfjöllun á fundinum.
World Economic Forum eru alþjóðleg samtök með aðsetur í Sviss. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er samstarfsstofnun World Economic Forum á Íslandi.
Nánari upplýsingar um fundinn er að finna á vef samtakanna.








