Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

17.1.2008

Evrópumiðstöð eflir tengslanet sitt

Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands aðstoðar íslensk fyrirtæki við að finna samstarfsaðila í Evrópu í gegnum IRC tengslanetið, Innovation Relay Centre. Starfsemi þess miðar að því að leiða saman tækni, þekkingu og fólk og stuðla þannig að nýsköpun í Evrópu og styrkja stoðir samkeppnishæfni álfunnar. Um áramótin sameinaðist starfsemi IRC og Euro Info Centre skrifstofunnar hjá Útflutningsráði. Að auki mun hluti af starfsemi Rannís tengjast þessum breytingum. Nýja tengslanetið ber heitið Enterprise Europe Network (EEN) og mun Evrópumiðstöð Impru leiða þessa starfsemi á Íslandi. Markmiðin eru áfram þau sömu, þ.e.a.s. að stuðla að nýsköpun, tækniyfirfærslu og að styrkja samkeppnishæfni.

Viðskiptamannahópur Evrópumiðstöðvar eru aðallega lítil og meðalstór fyrirtæki en einnig tæknisetur, stór fyrirtæki, rannsóknastofnanir og háskólar.

Viltu finna samstarfsaðila? Koma þinni tækni eða nýjung á framfæri? Athuga möguleika á styrkjum vegna sjöundu rammaáætlun Evrópusambandsins? - Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands getur aðstoðað við allt þetta. Hafið samband og leitið nánari upplýsinga hjá anna@nmi.is, amanda@nmi.is og kristinh@nmi.is.


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica