Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

17.1.2008

Skráning á námskeið Impru

Impra á Nýsköpunarmiðstöð fer um víðan völl næstu mánuðina því á döfinni eru ýmis námskeið í höfuðborginni og á landsbyggðinni, þar á meðal hin sívinsælu Brautargengisnámskeið sem hefjast í Reykjavík 6. febrúar og á Akureyri, Ísafirði og Hellu 16. febrúar.

Verkefnið Vaxtarsprotar fer af stað 28. janúar í Þingeyjarsýslum en það er samstarfsverkefni Framleiðnisjóðar landbúnaðarins og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og hefur það að markmiði að hvetja til fjölbreyttari atvinnusköpunar í sveitum landsins.

Skráning er einnig hafin í stjórnunarnám fyrir verkstjórnendur í fyrirtækjum sem hefst 11. febrúar. Verkstjórnunarnámskeiðið er starfsnám fyrir starfandi og verðandi verkstjórnendur þar sem valinkunnir leiðbeinendur með reynslu úr atvinnulífinu miðla þekkingu sinni.

Nánar um námskeiðin


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica