Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

21.1.2008

Kynningarfundur um viðskiptasérleyfi í samstarfi við bandaríska sendiráðið

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og bandaríska sendiráðið standa fyrir kynningarfundi á Grand Hótel mánudaginn 28. janúar nk. um viðskiptasérleyfi (franchising) í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu sem haldin verður í apríl í Washington, Bandaríkjunum. Ráðstefnan, sem ber heitið International Franchise Expo 2008, er stærsta ráðstefna í heimi um viðskiptasérleyfi. Nýsköpunarmiðstöð er í samstarfi við viðskiptaþjónustu Bandaríkjanna vegna ráðstefnunnar og verið er að undirbúa för sendinefndar íslenskra fyrirtækja og áhugafólks um sérleyfi á ráðstefnuna.

Viðskiptaþjónusta Bandaríkjanna mun aðstoða áhugasama við að finna þjónustu og vörur frá Bandaríkjunum á þessari ráðstefnu og getur komið að undirbúningi funda til að ferðin verði sem árangursríkust.

Framsögumenn á fundinum verða Árni Vilhjálmsson hrl. LOGOS lögmannsþjónustu, Arnar B. Sigurðsson efnahags- og viðskiptafulltrúi bandaríska sendiráðsins og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sérleyfishafi Pizza Hut á Íslandi. Að loknum erindum mun Emil Karlsson forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar á Háskólanum á Bifröst og sérfræðingur í viðskiptasérleyfum svara fyrirspurnum. Fundarstjóri verður Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Impru á Nýsköpunarmiðstöð.

Áætlað er að um 100 aðilar á Íslandi séu með rekstur sem byggir á viðskiptasérleyfi, sem er í raun leiga á viðskiptahugmynd. Viðskiptasérleyfi má nota í næstum hvaða geira atvinnulífsins sem er þar sem um er að ræða sölu á vörum og/eða þjónustu.

International Franchise Expo 2008 verður haldin dagana 11. - 13. apríl. Þangað koma bæði viðskiptasérleyfisgjafar og -hafar, þ.e. fyrirtæki og einstaklingar sem vilja kaupa viðskiptasérleyfi eða selja þau. Nánari upplýsingar er að finna á www.ifeinfo.com.

Morgunverðarfundur - staður og stund:             

Grand Hótel í Háteig A, mánudaginn 28. janúar næstkomandi kl. 8:30 - 10:00.

Áhugasamir aðilar um ný viðskiptatækifæri eru hvattir til að mæta á kynningarfundinn.

Frekari upplýsingar veitir Rósa Signý Gísladóttir í síma 522 9104, e-mail: rosasigny@nmi.is


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica