Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

3.7.2008

Frumkvöðlanám fær góðar viðtökur

Tvær háskólastofnanir hafa bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða upp á frumkvöðlanám á háskólastigi sem hefst í haust.

Frumkvöðlanám Keilis

Skóli skapandi greina á Keili býður nú upp á eins árs frumkvöðlanám á háskólastigi í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og verkfræðideild Háskóla Íslands. Í náminu gefst nemendum tækifæri á að þróa hugmynd sína og gera fullbúna viðskiptaáætlun undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í þessum efnum. Námið er 60 ECTS diplomanám á háskólastigi og nemendur útskrifast með gráðuna PDE (Professional Diploma in Entrepreneurship). Nú þegar hefur fjöldi umsókna borist í Frumkvöðlanám Keilis en umsóknarfrestur rennur út í ágúst. 

Um frumkvöðlanám Keilis

Viðskiptasmiðjan - Hraðbraut nýrra fyrirtækja

Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins og Háskólinn í Reykjavík hafa komið á fót hraðbraut sem gefur frumkvöðlum möguleika á að stofna ný fyrirtæki eða koma fyrirtækjum sínum á rétta braut. Mikið úrval námskeiða í samstarfi við HR gerir frumkvöðlum kleift að fá viðeigandi viðskiptaþekkingu og áhersla er lögð á tengsl við aðra frumkvöðla og fjárfesta.

Um Viðskiptasmiðjuna


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica