Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
3.7.2008
Styrkur úr Orkusjóði í varmadæluverkefni
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur fengið 2, 5 milljónir kr. styrk úr Orkusjóði til að kanna hvort mögulegt og hagkvæmt sé að koma upp miðlægri varmadælu fyrir fjarvarmaveitu Vestmannaeyja, en slík tækni myndi spara umtalsvert rafmagn sem nú er notað til veitunnar. Iðnaðarráðuneytið tilkynnti styrkveitinguna 1. júlí síðast liðinn en alls voru fjórtán styrkir veittir úr Orkusjóði til rannsókar- og kynningarverkefna fyrir árið 2008.
Markmið varmadæluverkefnisins er að kanna möguleika á að koma upp miðlægri varmadælu sem nýtir sjóinn sem varmagjafa. Þessari tækni er beitt í Svíþjóð og Noregi en er óreynd hér. Orkuráð hefur veitt vilyrði fyrir framhaldsstyrk til verkefnisins á næsta ári.
Nú eru starfsmenn Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Vestmannaeyjum tveir. Frosti Gíslason er verkefnisstjóri varmadæluverkefnisins.








