Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

8.7.2008

Hátt í 200 konur hafa lokið námskeiði í samningatækni

Nú hafa hátt í 200 konur lokið námskeiði í samningatækni fyrir konur á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Því má segja að Nýsköpunarmiðstöð hafi haft áhrif á lífsgæði og kjör 200 kvenna á höfuðborgarsvæðinu, en markmið námskeiðsins er að kynna konum grunnhugmyndir samningatækninnar og þjálfa þær í að nota samningatæknina í samskiptum sínum og samningum, sér og fyrirtækjum sínum eða atvinnurekendum til hagsbóta.

Í vor voru haldin fjölsótt námskeið í samningatækni í samstarfi við SFR og BSRB í Reykjavík og í haust verður boðið upp á námskeið í samningatækni í Vestmannaeyjum, á Egilsstöðum, Ísafirði og Akureyri í samvinnu við SFR og BHM, en námskeiðið er frítt fyrir félagsmenn aðildarfélaganna.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Sif Sigfúsdóttir markaðsstjóri viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands.  

Nánari upplýsingar gefur Brynja Sigurðardóttir brynjasig@nmi.is í síma 522-9000.

 

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica