Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

10.7.2008

Evrópumiðstöð kynnir starfsemi sína í Eyjum

Anna Lúðvíksdóttir sérfræðingur Evrópumiðstöðvar Impru á Nýsköpunarmiðstöð heimsótti starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar í Vestmannaeyjum 10. júlí og fundaði með fulltrúum fyrirtækja, stofnana og háskóla í Eyjum. Á fundinum kynnti Anna kynnti þau tækifæri sem felast í Evrópusamstarfi og þeirri þjónustu sem boðið er upp á hjá Evrópumiðstöðinni. Á fundinn mættu m.a. fulltrúar sjávarútvegsfyrirtækja, rannsóknarþjónustufyrirtækja, þekkingarseturs, háskóla og iðnaðarfyrirtækja í Vestmannaeyjum ásamt starfsmönnum NMÍ.

Farið var sérstaklega yfir verkefni á sviði tækniyfirfærslu, samvinnu, rannsókna og
styrkveitinga Evrópusambandsins. Ljóst er að fyrirtæki í fiskvinnslu og iðnaði í Vestmannaeyjum geta nýtt sér þjónustu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á margvíslegan hátt og unnið markvisst að því að auka samkeppnishæfni sína í alþjóðlegu umhverfi.

Tilkoma starfsstöðvar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Vestmannaeyjum styttir boðleiðir til aukins alþjóðlegs samstarfs í gegnum Evrópumiðstöð Impru en þess má geta að á starfsstöðinni í Vestmannaeyjum er svo kallað FabLab setur sem vinnur náið með öðrum sambærilegum setrum um allan heim, þar á meðal í Boston, Barcelona, Chicago, Amsterdam, Lyngen í Noregi og í Afganistan.

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica