Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

11.7.2008

Umsóknarfrestur framlengdur í Gáttir - Þróun í menningartengdri ferðaþjónustu

Umsóknarfrestur um þátttöku í verkefninu Gáttir – þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu hefur verið framlengdur til 5. ágúst vegna fjölda ábendinga um að tími sé knappur til umsóknagerðar.  Um er að ræða verkefni  á vegum iðnaðarráðuneytis unnið af Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofu í samvinnu við Háskólann á Hólum.

Um er að ræða 2ja ára stuðningsverkefni í vöruþróun menningartengdrar ferðaþjónustu.  Með þessu verkefni er stefnt að því að auka framboð á arðbærri vöru/þjónustu í menningartengdri ferðaþjónustu og stuðla að faglegum lausnum við vöruþróun í greininni.  Gert er ráð fyrir að um nokkurs konar klasasamstarf fyrirtækja verði að ræða ýmist svæðisbundið samstarf eða samstarf á landsvísu á faglegum grundvelli.  Verkefnunum er einkum ætlað að búa til nýja kosti sem geta haft áhrif á ferðatilhögun eða dvalarlengd ferðamanna en einnig að svara eftirspurn sem þegar er til staðar og hefur hingað til ekki verið sinnt.  Horft er til þess að efla þá menningartengdu ferðaþjónustu sem er fyrir hendi og kynna ný sóknarfæri til frekari uppbyggingar.

Tilgangur verkefnisins er að efla ferðaþjónustu með því að vinna úr svæðisbundnum menningarverðmætum, bæði í einstökum héruðum og á landsvísu. Ennfremur að efla skilning og samstarf milli héraða og innan héraðs á því að þróa vöru og þjónustu byggða á menningu og menningararfi landsbyggðarinnar. Ferðaþjónustufyrirtæki eða hópar fyrirtækja sem taka þátt fá aðstoð við stjórnun vöruþróunarverkefnis í menningartengdri ferðaþjónustu.  Með verkefninu er verið að auka þekkingu á gæðum og þróun nýrrar vöru og/eða þjónustu.

Frekari upplýsingar veita:  Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnastjóri hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð í síma  861-4913 netfang: sirry@nmi.is eða Ferðamálastofa á Akureyri í síma 464-9990.

Einnig á vefjunum www.nmi.is og www.ferdamalastofa.is


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica