Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar
14.7.2008
Ný viðhorf á sviði tækni og nýsköpunar
Nýsköpunarmiðstöð Íslands tekur þátt í norrænu verkefni á sviði "converging technology", sem þýtt hefur verið sem samþætting eða samtvinnandi tækni. Á sviði hátækni er oftar en ekki rætt um mikilvægi þess að fræðigreinar vinni saman að lausnum á sviði nýsköpunar til að ná tilsettum árangri. Þessi umræða hefur jafnframt haft áhrif á hvernig fyrirtæki í hefðbundnum greinum nálgast sín verkefni á sviði nýsköpunar og þá ekki síst framsækin hátækni- og sprotafyrirtæki.
Haldinn var klynningarfundur um "Converging Technology" á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands í mars. Fyrirlesarar voru Leif Jakobsen og Peter Bjorn Larsen frá DTI í Danmörku, en þeir eru að vinna að verkefnum á sviði Converging Technology fyrir Norrænu Nýsköpunarmiðstöðina og Evrópusambandið.
Fyrirlestrar Leif Jakobsen og Peter Bjorn Larsen
Verkefnið sem Nýsköpunarmiðstöð tekur þátt í byggir á þátttöku fyrirtækja í viðkomandi löndum og nýsköpun í starfi þeirra. Sjá nánar á vefsíðu verkefnisins.








