Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

30.6.2009

Gögn frá Eurostars - EEN kynningarfundi

Á heitum sumardegi nú þegar sumarfrí fara að nálgast mættu þrjátíu manns á kynningarfund um Eurostars styrkáætlunina og Enterprise Europe Network sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarins buðu til morguninn 30. júní 2009. Sextán þeirra sem mættu voru frá fyrirtækjum.

Snæbjörn Kristjánsson verkfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands kynnti Eurostars áætlunina sem er sérsniðin fyrir smáfyrirtæki sem stunda sjálf rannsóknir og þróun. Vaki Fiskeldiskerfi hf er fyrsta Eurostars verkefnið með íslenskri þátttöku en samstarfsaðilar þessu eru í Skotlandi. Næsti skilafrestur Eurostars umsókna er til 24. september 2009.

Kristín Halldórsdóttir verkefnisstjóri hjá Enterprise Europe Network kynnti aðstoð við að finna samstarfsaðila.

Í lok fundar voru líflegar umræður. Davíð Lúðvíksson forstöðumaður hjá Samtökum iðnaðarins var fundarstjóri og bauð til ríkulegs morgunverðar.

Nánari upplýsingar um Eurostars og gögn frá fundinum

Enterprise Europe Network


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica