Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

5.1.2010

Umfjöllun um Orkubónda í fréttum RÚV

Orkubóndinn hefur nú slegið vel í gegn um allt land og í seinni fréttum Sjónvarpsins 4. janúar var rætt við Þorstein Inga forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar um námskeiðið.

Hér má sjá fréttina í heild sinni

Orkubóndinn verður haldinn næst á Egilsstöðum þann 12. og 13. janúar á Hótel Héraði. Dagskrá námskeiðsins

Orkubóndinn er námskeið fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur og bændur sem hafa hug á að beisla orkuna heima fyrir. Í landinu okkar er ógrynni af endurnýtanlegri orku sem fellur til og hægt er að nýta. Á námskeiðinu er farið yfir viðfangsefnið á mannamáli og fjallað um leiðir til að virkja læki eða ár, jarðhita, vindorku, sólarorku eða jafnvel fjóshauginn. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sérfræðingar frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun, verkfræðistofum víða af landinu og heimamenn. Í kjölfar námskeiðsins fá þeir þátttakendur sem þess óska aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd.

Næsta námskeið er á Egilsstöðum dagana 12. og 13. janúar

Skráningu þarf að vera lokið 10. janúar. Námskeiðsgjald er 3.000 krónur. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru léttar veitingar í hádegi og kaffi.

Skráning

Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Mannvits, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytisins, Verkís, atvinnuþróunarfélaga og sveitarfélaga víða um land.

Dagskrá 12. janúar - Hótel Héraði Egilsstöðum
10:00 Skráning
10:15 Skipulag námskeiðsins
10:20 Endurnýjanlegar orkulindir og aðgengi þeirra á Ísland. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
11:00 Orkulindir sem eru lengra undan í tíma. Ingólfur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri efnis-, líf- og orkudeildar Nýsköpunarmiðstöð Íslands

12:00 Léttar veitingar
12:30 Virkjun vatnsafls Árni Sigurðsson verkfræðistofu Norðurlands og Jón Snæbjörnsson Verkís
13:30 Jarðvarmi Ragnar Ásmundsson Ísor
14:20 Gerð eigin eldsneytis. Ingólfur Þorbjörnsson, framkvæmdarstjóri efnis-, líf- og orkudeildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
15:15 Varmadælur. Reglugerðir og umhverfismál. Sigurður Ingi Friðleifsson Orkustofnun
16:05 Eftirlit og ástandgreiningar vélbúnaðar. Bjarni Ellert Ísleifsson, verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöð Íslands 16.30 Áhugasviðum og viðfangsefnum fundarmanna safnað saman. Undirbúningsvinna fyrir seinni dag byggð á verkefnishugmyndum sem fyrir liggja.
16:45 Lok fyrri dags


Dagskrá 13. janúar - Hótel Héraði Egilsstöðum
10:00 Skipulagning
10:30 Þátttakendur skipta sér í hópa eftir áhugasviðum og viðfangsefnum undir leiðsögn leiðbeinanda

12:00 Léttar veitingar
13:00 Áframhaldandi hópavinna sem leidd er af leiðbeinendum
13:40 Samantekt vinnuhópa - staða hugsanlegra verkefna og umræður um framhald þeirra undir leiðsögn Þorsteins Inga Sigfússonar.
14:00 Heimsókn til virkjunnar á Seyðisfirði, Birkir Þór Guðmundsson Framkvæmdastjóri Íslenskrar Orkuvirkjunnar

19. maí verður ráðstefna haldin í Reykjavík þar sem þátttakendur af námskeiðunum koma saman ásamt fagaðilum úr orkugeiranum. Iðnaðarráðherra mun þar veita hvatningarverðlaunin Orkubóndinn.

 

Allar frekari upplýsingar veitir Bjarni Ellert Ísleifsson, verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Austurlandi, bjarni@nmi.is, GSM: 864 9101, Skrifstofusími: 522 9471

 

 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica