Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir Nýsköpunarmiðstöðvar

25.1.2010

Vaxtarsprotar í Eyjafirði - Kynningarfundir

Stuðningsverkefnið Vaxtarsprotar er samstarfsverkefni Framleiðnisjóðus landbúnaðarins og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem hefur það að markmiði að hvetja til fjölbreyttrar atvinnusköpunar í sveitum landsins.

Verkefnið nær til landsins alls en unnið er innan ákveðinna svæða hverju sinni. Það svæði sem verkefnið mun beinast að á fyrri hluta ársins 2010 er Eyjafjörður. Verkefnið er unnið í samstarfi við landbúnaðarráðunauta sem og atvinnuþróunarfélög á viðkomandi svæði.   

Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit, óháð eðli viðskiptahugmynda, atvinnugreinum, eða reynslu þátttakenda á sviði atvinnurekstrar. Íbúar í þéttbýli geta einnig tekið þátt, en ábúendur á lögbýlum hafa forgang. Þátttakendur vinna með eigin viðskiptahugmyndir. Fulltrúum starfandi fyrirtækja er einnig velkomið að taka þátt með það að markmiði að vinna að frekari framþróun eða mótun nýjunga í rekstri sínum. Þátttaka í Vaxtarsprotum er án endurgjalds.

Kynningarfundir vegna Vaxtarsprota í Eyjafirði verða haldnir mánudaginn 1. febrúar.  Fyrri fundurinn verður að Rimum í Svarfaðardal kl. 10:00 og seinni fundurinn í Sveinbjarnargerði kl. 16:00.

Á fundunum munu áhugaverðir fyrirlesarar fjalla um atvinnusköpun og segja frá reynslu sinni.  Fyrirlesarar verða Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Óöf Hallgrímsdóttir ferðaþjónustubóndi í Vogum í Mývatnssveit og Jón G. Guðbjörnsson framkvæmdastjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. 


Útgáfa og vefverslun Nýsköpunarmiðstöðvar

Að hverju ertu að leita?

Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar starfa á mörgum sérsviðum.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista Nýsköpunarmiðstöðvar og fáðu fréttir af starfinu.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðHamur fyrir sjónskerta

Mynd


Tungumál

Information in english Language/lingüistica