Norrænt samstarf
Nýsköpunarmiðstöð Íslands heldur utan um átaksverkefni um markvissa upplýsingamiðlun um fjármögnunarleiðir innan norræns samstarfs. Markmiðið er að upplýsa og auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í norræna styrkja- og stuðningsmöguleika. Horft er til norrænna samstarfsverkefna á breiðu sviði og í raun eru allir málaflokkar og atvinnugeirar samfélagsins undir.
Verkefnisstjóri er Kjartan Due Nielsen en hann veitir ráðgjöf og stuðning og leiðbeinir m.a. við umsóknarskrif og við myndun tengslaneta. Fyrirtæki og aðrir eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu því ótal tækifæri felast í norrænu samstarfi. Hafa má samband við Kjartan með því að senda tölvupóst á netfangið: kjartan@nmi.is eða í síma: 522-9246.
Yfirlit yfir þá styrkja- og stuðningsmöguleika sem í boði eru, er að finna hér.








